2022-2026, Fræðslumál, Umhverfis- og skipulagsmál, Velferðarmál

Kjörtímabilið 2022 til 2026 – Gauti Árnason oddviti XD og forseti bæjarstjórnar

Nú þegar kjörtímabilið er að renna sitt skeið er við hæfi að líta um öxl og fara yfir markmið sem fram komu í málefnasamningi og hvað hefur áunnist. 


Þrjú mál á oddinn í haust – árangur í þeim öllum!

Ég vil byrja þessa samantekt á að nefna þrjú verkefni – allt verkefni sem bæjarstjórn hefur lagt sérstaka áherslu á að „klára“ síðustu mánuði. 

Í lok september var svokölluð kjördæmavika, en þá koma þingmenn kjördæmisins og eiga fundi með bæjarstjórn.

Á fundi okkar í Gömlubúð með þingmönnum Suðurlands þann 29. september sl. lögðum við áherslu á þrjú krefjandi hagsmunamál sem skipta okkur gríðarlega miklu máli – mál þar sem við þurftum á stuðningi og skilningi ríkisvaldsins að halda, þessi mál eru:

  1. Að fá tryggingu og fyrirsjáanleika varðandi dýpkun á Grynnslunum
  2. Að fá ríkið með okkur í að byggja nýja björgunarmiðstöð í Öræfum
  3. Að losna undan fjárhagslegri og íþyngjandi ábyrgð vegna nýja hjúkrunarheimilisins

Mig langar að fara hér í stuttu máli yfir þann mikilvæga árangur sem náðst hefur í öllum þessum málum.

1.      Grynnslin – eyðum óvissu, alvöru skip, alvöru dýpkun

Markmið okkar í þessu máli var ekki að „redda næstu dýpkun“, eins og verið hefur síðustu ár, heldur að skapa raunverulegan fyrirsjáanleika fyrir höfnina, sem er lífæð samfélagsins og lykilinnviður fyrir atvinnulíf og byggð. 

Nú liggur fyrir niðurstaða útboðs um viðhaldsdýpkun til næstu þriggja ára þar sem gert er ráð fyrir að dýpka að meðaltali um hvorki meira né inna en 650.000 rúmmetra á ári. 

Í fyrsta skipti erum við því komin með raunverulegan fyrirsjáanleika í þessum málum – sem skiptir sköpum fyrir fyrirtæki sem hafa fjárfest fyrir milljarða og geta ekki búið við óvissu um aðgengi að höfninni.

2.      Hjúkrunarheimilið – losnum undan gríðarlegri fjárhagslegri byrði

Staða sveitarfélagsins gagnvart nýja hjúkrunarheimilinu var orðin grafalvarleg. Verkið hafði tafist verulega, kostnaður farið úr böndunum og óvissa ríkti um framhald þess, á sama tíma og sveitarfélagið bar mikla fjárhagslega ábyrgð án þess að hafa raunverulegt ákvörðunarvald yfir framkvæmdinni. Fyrirséð var að kostnaður upp á meira en 500 milljóna króna myndi að óbreyttu lenda á 2.800 manna samfélagi í málaflokki sem sveitarfélög bera ekki ábyrgð á.

Með markvissri hagsmunabaráttu tókst okkur að ná þeirri niðurstöðu að ríkið tæki verkefnið alfarið yfir. Með því losnaði sveitarfélagið undan mikilli fjárhagslegri áhættu og óvissu, sem skiptir sköpum fyrir framtíðarstöðu þess og getu til að sinna öðrum lögbundnum verkefnum.

3.      Ný björgunarmiðstöð – bráðaviðbragð tryggt og heilbrigðisþjónusta í skoðun 

Öryggismál í Öræfum eru ekki bara staðbundið mál, heldur þjóðaröryggismál og okkur hefur tekist að vekja máls á því. Um er að ræða eitt fjölsóttasta ferðamannasvæði landsins, með krefjandi náttúru, mikla umferð og langar vegalengdir að þjónustu. Markmið okkar er skýrt: að byggja upp öfluga björgunarmiðstöð sem sameinar aðstöðu fyrir björgunarsveitina, slökkvilið, heilbrigðisþjónustu, lögreglu og vetrarþjónustu Vegagerðarinnar.

Staðan í dag er sú að unnin hefur verið þarfagreining og næst þarf að taka samtal við ríkið um samstarf og fjármögnun, sem er grundvallarskref í átt að raunverulegri uppbyggingu.

En í þessari vinnu náðum við líka að tryggja að það bráðaviðbragð sem verið hefur á svæðinu er tryggt áfram, ásamt því að Heilbrigðisstofnun Suðurlands vinnur nú formlega að því í samtarfi við okkur að skoða hvernig veita má heilbrigðisþjónustu í Öræfum.  

Hagsmunabarátta sem skilar árangri

Þannig höfum við, í fyrsta skipti í sögunni, náð raunverulegum fyrirsjáanleika í dýpkun á Grynnslunum, losnað undan fjárhagslegri skuldbindingu upp á rúmlega hálfan milljarð króna vegna nýja hjúkrunarheimilisins og unnið þarfagreiningu fyrir nýja björgunarmiðstöð í Öræfum. Jafnframt hefur verið tryggt áframhaldandi heilsárs bráðaviðbragð á svæðinu og komið af stað verkefni hjá HSU um að skoða með hvaða hætti hægt er að byggja upp varanlega heilbrigðisþjónustu í Öræfum.

Þessi árangur er ekki sjálfgefinn. Hann er afrakstur óþreytandi hagsmunabaráttu, samtals og samvinnu við þingmenn, ráðherra og stofnanir ríkisins. Þetta eru stór mál, með mikla fjárhagslega og samfélagslega þýðingu – og árangur sem við þurfum að vera dugleg að halda á lofti og segja frá.

Förum nú aðeins yfir málefnasamninginn

Næst ætla ég að tæpa á nokkrum af þeim markmiðum sem fram komu í málefnasamningi XD og KEX fyrir kjörtímabilið.

Skipulagsmál

Skipulagsmál eru umfangsmikill og krefjandi málaflokkur – ekki síst þegar kraftur er settur í framkvæmdir og mikil uppbygging. Eitt af því fyrsta sem við gerðum var að fjölga fundum umhverfis- og skipulagsnefndar og hefur sú breyting á þjónustu reynst ákaflega vel. 

Nýtt aðalskipulag

Endurskoðun aðalskipulags var sett í gang strax í upphafi kjörtímabilsins. Sú vinna hefur tekið mikla orku, tíma og fjármuni, en hefur líka gengið vel. Á öllum stigum vinnunnar hefur verið lögð áhersla á vandaða upplýsingagjöf og samtal vil íbúa og aðra haghafa. Nú sér loks fyrir endann á þessu umfangsmikla verkefni. 

Vinnslutillaga var kynnt í skipulagsgátt í sumar og var umsagnafrestur til 20. ágúst. Að því loknu var unnið út umsögnum og voru tillögur að svörum lagðar fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd í byrjun október. Því næst var tillagan send á Skipulagsstofnunar til yfirferðar. Samkvæmt nýjustu upplýsingum munum við fá viðbrögð frá þeim núna í janúar og í framhaldi af því verður tillagan auglýst að nýju og opnað fyrir athugasemdir.

Aukið lóðaframboð

Strax í upphafi kjörtímabilsins var stefnan sett á að leggja drög að nýju hverfi á reit sem þá bar nafnið ÍB-5. Nú eru lóðir í fyrsta áfanga í glæsilegu Hagahverfi lausar til úthlutunar. Í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir öllum gerðum íbúða, allt frá einbýlishúsalóðum, par- og raðhúsum ásamt þremur fjölbýlishúsum á allt að þremur hæðum.  

Fráveitumál

Framkvæmdir við fráveitu hafa verið markvissar allt kjörtímabilið. Á þessu ári munum við ná stórum áfanga með framkvæmdum við svokallaðan 4b. áfanga fráveituuppbyggingarinnar. Þar verða nýjar lagnir, dælustöðvar og tengingar lagðar á Sandbakka- og Nýheimasvæðið en að þessu loknu verður allur bærinn loks kominn í tengingu við dælustöðina í Óslandi. 

Þess má geta líka að við erum í langtíma framkvæmdaáætlun okkar með fjármagn til þess að halda áfram að vinna í okkar fráveitumálum. Þar munum við fara í þarfagreiningu og skoða meðal annars hvort við eigum að þróa núverandi dælustöð í þá átt að hún verði hreinsivirki, með tveggja eða þriggja þátta hreinsun. 

Leikvellir, samgöngur og öryggismál

Við höfum unnið markvisst allt kjörtímabilið að því að bæta leikvelli sveitarfélagsins, bæði með endurnýjun og viðhaldi eldri leikvalla, sem og uppsetningu nýrra. Nýr leikvöllur var settur upp í Miðtúninu og nýr glæsilegur leikvöllur á Leirusvæðið. Þá fór fram endurnýjun á leikvellinum á tjaldsvæðinu hér á Höfn. Þá er ný leikvallaáætlun langt komin en hún tekur til allra leikvalla í sveitarfélaginu. Við erum með 55 m.kr. áætlaðar til áframhaldandi framkvæmda við leikvelli í langtíma áætlun okkar. 

Umferðaröryggi hefur verið okkur ofarlega í huga allt kjörtímabilið. Við höfum verið óþreytandi að benda á veika öryggisinnviði og berjast fyrir auknu umferðaröryggi í sveitarfélaginu og út fyrir það. Við höfum óhikað sett upp hraðahindranir og þrengingar hér í þéttbýlinu og við skynjum ánægju með það enda er umferðahraðinn innanbæjar of mikill. 

Einnig er unnið þétt að nýrri og endurskoðaðri á umferðaröryggisáætlun. Við höfum malbikað göngustíga unnið að því að bæta ferðaleiðir innabæjar t.d. við golfvöllinn. 

Fjárfest hefur verið í tveimur nýjum og fullkomnum slökkvibílum. Annar bíllinn var fullkomin slökkvibifreið fyrir Slökkviliðið Hornafjarðar hér á Höfn og hinn bíllinn var undanfara- tækja og slökkvibifreið sem keypt var fyrir slökkviliðið í Öræfum. Sú bifreið er bylting fyrir viðbragðsaðila í Öræfum og Suðursveit. 

Þess má líka geta aftur hér, að nú hefur heilbrigðisráðuneytið gefið HSU grænt ljós á framhald verkefnisins um bráðaviðbragðs í Öræfum. Hafin er þjálfun heimafólks í sjúkraflutninganámi og samþykki fyrir því að senda allt að sex einstaklinga í slíkt nám á kostnað ríkisins. Samhliða þessu er  HSU að skoða möguleika á að setja upp aðstöðu á svæðinu þar sem heilbrigðisþjónusta yrði veitt með reglulega millibili.

Næsta skref í því ferli hjá okkur er að funda með HSU og fara yfir hvaða möguleikar eru fyrir hendi varðandi húsnæðismál fyrir slíka þjónustu. 

Reksturinn straumlínulagaður 

Í upphafi kjörtímabilsins var gerð heildstæð úttekt á íbúðaeignum sveitarfélagsins með það að markmiði að tryggja að eignasafnið endurspeglaði raunverulega þörf íbúa, en jafnframt losa um eignir sem ekki þóttu lengur nauðsynlegar. Í kjölfarið voru 18 íbúðir seldar inn í Leigufélagið Bríeti, sem hefur leitt til verulegrar hagræðingar í rekstri, minni umsýslu og lægri kostnaðar fyrir sveitarfélagið. Með sölunni tók Bríet yfir lán að fjárhæð um 170 milljónir króna, skuldbatt sig til uppbyggingar nýrra leiguíbúða í sveitarfélaginu og sveitarfélagið eignaðist jafnframt hlut í félaginu að verðmæti 280 milljónir króna.

Þá eru viðræður við Bríet um að byggja hagkvæmar leiguíbúðir á fjölbýlishúsalóð í nýju Hagahverfi.  

Stóraukin stuðningur við íþrótta- og tómstundastarf

Eitt af því sem sveitarfélagið hefur lyft grettistaki í undanfarið er stuðningur við íþróttafélög og tómstundastarf. Nýr fimm ára samningur var nýlega undirritaður við UMF Sindra og framlög hækkuð. Þá voru endurnýjaðir samningar við fleiri félög, framlög hækkuð, fjárhæðir vísitölutengdar og markmið og skýrleiki samninga aukinn. Í þessu sambandi má nefna Golfklúbbinn, UMF Vísi í Suðursveit og Aksturíþróttafélag Austur Skaftafellssýslu. 

Þess má líka geta að endurnýjaðir voru samningar björgunarfélögin okkar ásamt fjölda annarra félagasamtaka. 

Heildarsýn í uppbyggingu: íþróttahús og grunnskóli 

Eitt af stóru málunum sem koma fram í málefnasamningi okkar fyrir kjörtímabilið var að fara í undirbúning og skipulagsvinnu varðandi nýtt íþróttahús á miðsvæði Hafnar í góðu samráði við alla hagsmunaaðila.

Settur var á laggirnar stýrihópur um uppbyggingu nýs íþróttahúss og mikið starf hefur verið unnið í að greina þarfir og leita hagkvæmustu og bestu lausna. Ekki hefur verið full samstaða um staðsetningu hússins þó að við í meirihlutanum höfum verið á einu máli um það. En umræðan um staðsetningu og útfærslu hefur í raun styrkt verkefnið og kallað fram skýrari forsendur. 

Nú er unnið að því að samræma þessa vinnu við þarfagreiningu fyrir grunnskólann sem unnið er að, þannig að þessi stóru verkefni tali saman á öllum sviðum – faglega, fjárhagslega og skipulagslega. 

Auglýst hefur verið eftir verkefnastjóra uppbyggingar íþrótta- og skólamannvirkja og standa viðtöl nú yfir. Markmið okkar er að framkvæmdir geti hafist á árinu. 

Þótt ég hefði kosið að þetta hefði gengið hraðar, tel ég jafnframt að þessi langi og mikli undirbúningur geti skilað enn betri niðurstöðu fyrir samfélagið til lengri tíma litið.

Grunnstoðir samfélagsins 

Í málefnasamningi XD og KEX er kafli sem nefnist: Grunnstoðir samfélagsins. Mig langar að tæpa hér á nokkrum atriðum sem þar koma fram. En á heildina litið sést þegar markmiðin og verkefnin í þeim kafla eru skoðuð, að árangur hafi náðst í öllum verkefnunum sem þar koma fram nema því að „gera leikskólann gjaldfrjálsan“. 

Viðbygging við leikskólann – leikskólamál í forgrunni 

Ný og glæsileg tveggja deilda viðbygging var tekin í notkun við leikskólann á síðasta ári og nú fá öll börn í Hornafirði leikskólavist frá 12 mánaða aldri. Leikskólamál hafa verið í forgangi hjá bæjarstjórn á kjörtímabilinu. Stærsta áskorunin í þeim málaflokki tengist þó ekki aðstöðu eða byggingum, heldur starfsmannamálum. Mönnun á leikskólanum hefur verið áskorun hér í Hornafirði, líkt og víðar um landið.

Til að bregðast við þeirri stöðu var settur á laggirnar þverpólitískur starfshópur um leikskólamál sem skilaði í byrjun árs 2024 ítarlegri greiningu á stöðu málaflokksins. Þar var farið heildstætt yfir mönnun, starfsumhverfi, menntunarstig og starfsanda, og lagðar fram forgangsraðaðar tillögur að raunhæfum aðgerðum til skemmri og lengri tíma. Markmiðið var skýrt: að styrkja mannauðinn, bæta aðstæður starfsfólks og gera leikskólana okkar að eftirsóknarverðum vinnustöðum. Bæjarstjórn samþykkti tillögurnar og hafa þær þegar verið innleiddar. Viðbrögð starfsfólks hafa verið jákvæð og starfsánægja hefur aukist, þótt mönnun sé enn áskorun – og verði líklega áfram í einhverjum mæli.

Öflugt starf á velferðarsviði og uppbygging í Ekru

Gríðarlega mikið og gott starf hefur verið unnið á velferðarsviðinu á kjörtímabilinu og höfum við markvisst veitt málaflokknum aukna athygli. Það hefur skilað sér í bættri og aukinni þjónustu við okkar besta fólk, bæði í Miðgarði, Ekru og í virkniþjónustunni í Selinu. Nú eru framundan mikilvægar framkvæmdir í Ekru, unnar í góðu samstarfi við Félag eldri Hornfirðinga, þar sem farið verður í endurnýjun á sal, eldhúsi, dagvist aldraðra og því rými sem félagið og félagsmenn nýta undir sitt öfluga og fjölbreytta starf.

Nýr Sindrabær mun þjóna samfélaginu um langa framtíð

Umfangsmiklum endurbótum á Sindrabæ lauk síðasta haust. Húsnæðið allt hefur nú verið endurbætt frá grunni og aðstaða færð upp á það stig sem best verður á kosið. Með þessum framkvæmdum hefur verið lagt traustur grunnur að öflugu tónlistar-, menningar- og samkomuhúsi sem mun þjóna okkur Hornfirðingum um ókomna framtíð. 

Það eina sem eftir stendur á endurbótunum eru kaup á hljóð- og tæknibúnaði, en það útboð var kært og féll okkur í óhag. Nú er unnið að nýjum örútboðum og kaupum í gegnum rammasamninga – í kjölfarið á því verður nýr Sindrabær formlega vígður.

Íbúaráð – virkt samtal í víðfeðmu sveitarfélaga

Eitt af markmiðum málefnasamnings okkar var að koma á fót hverfisráðum með fulltrúum frá Öræfum, Suðursveit, Mýrum, Nesjum og Lóni, til að efla upplýsingaflæði og styrkja samtal við íbúa dreifbýlisins. Til að gera langa sögu stutta var þetta framkvæmt með stofnun íbúaráða. Þessi aðgerð hefur reynst afar verðmætur vettvangur fyrir samráð, samtal og miðlun sjónarmiða. Í jafn víðfeðmu sveitarfélagi og Hornafirði skiptir miklu máli að ákvarðanir byggi á staðbundinni þekkingu og raunverulegum þörfum fólks, og íbúaráðin hafa þegar sýnt að þau styrkja tengslin milli íbúa og stjórnkerfis, gera ákvarðanatöku markvissari og auka traust.

Menningarmiðstöð Hornafjarðar – enn kraftmeiri starfsemi 

Í málefnasamningi okkar var sett skýr áhersla á að efla Menningarmiðstöð Hornafjarðar og móta stefnu til framtíðar – og sú vinna hefur sannarlega skilað sér. Starfsemin er í miklum blóma og einkennist af krafti, fjölbreytni og aukinni þátttöku. 

Menningarmiðstöðin fékk meðal annars Gömlubúð aftur til afnota á kjörtímabilinu, tveir starfsmenn voru ráðnir til starfa í húsinu og líf hefur snúið aftur í þessa sögulegu byggingu með lifandi tónlistar- og menningarviðburðum. Húsið gegnir nú einnig mikilvægu hlutverki sem móttökuaðstaða fyrir sveitarfélagið og framundan eru nýjar sýningar og fjölbreytt verkefni sem styrkja enn frekar stöðu menningar í samfélaginu.

Sorpmál – stöðugar umbætur í síbreytilegum málaflokki

Í upphafi kjörtímabilsins var farið í heildarútboð á sorphirðu í sveitarfélaginu og síðan þá hefur verið unnið markvisst að því að bæta bæði þjónustu við íbúa og rekstur málaflokksins. Fjölmargar umbætur hafa verið innleiddar, meðal annars með framkvæmdum í Gárunni, aukinni flokkunargetu og uppsetningu stærri og öflugri pökkunarvélar. 

Þrátt fyrir það er ljóst að sorpmál eru og verða áfram áskorun, bæði hvað varðar framkvæmd, skipulag og kostnað, enda um stóran, tæknilega flókinn og síbreytilegan málaflokk að ræða. Þess vegna er þessi málaflokkur í stöðugri endurskoðun, með það að markmiði að bæta þjónustu, draga úr umhverfisáhrifum og tryggja sem hagkvæmastan og sjálfbærastan rekstur til framtíðar.

Traustur og ábyrgur rekstur 

Á kjörtímabilinu hefur verið lögð rík áhersla á traustan, ábyrgan og gagnsæjan rekstur sveitarfélagsins. Fjármálastjórn hefur einkennst af skynsemi, skýrri forgangsröðun og langtímahugsun, þar sem markmiðið hefur verið að tryggja stöðugleika, draga úr áhættu og skapa svigrúm til nauðsynlegra fjárfestinga í innviðum og þjónustu. 

Við höfum lagt okkur fram um að taka ákvarðanir á grundvelli gagna og raunhæfra forsendna, fremur en skammtímasjónarmiða, og haft að leiðarljósi að hver króna nýtist íbúum og samfélaginu sem best. Þessi nálgun hefur gert okkur kleift að ráðast í stór og mikilvæg verkefni án þess að ógna fjárhagslegum stöðugleika sveitarfélagsins, auk þess sem hún styrkir getu okkar til að mæta óvæntum áskorunum af yfirvegun og ábyrgð. 

Sveitarfélagið Hornafjörður stendur í dag mjög vel fjárhagslega og er vel í stakk búið til að takast á við áframhaldandi uppbyggingu innviða og þjónustu við íbúa. 

Kjörtímabil árangurs, jákvæðni og góðs samstarfs

Í þessari grein hef ég stiklað á stóru um helstu áherslur og árangur kjörtímabilsins, en það sem hér hefur verið nefnt er þó langt frá því að vera tæmandi upptalning. Verkefnin eru mörg, fjölbreytt og spanna ólíka málaflokka – en eiga það sameiginlegt að snúast um að styrkja samfélagið okkar, bæta þjónustu og byggja upp til framtíðar.

Þetta hefur verið skemmtilegt kjörtímabil sem hefur einkennst af bjartsýni, framkvæmdagleði og trú á Hornafjörð. Uppbygging hefur verið mikil víðs vegar um sveitarfélagið, bæði í þéttbýli og dreifbýli, og ekkert bendir til þess að úr þeirri þróun sé að draga. Þvert á móti eru stór og spennandi verkefni fram undan, sem munu móta samfélagið okkar til næstu ára og áratuga.

Atvinnulífið í Hornafirði er geysilega kröftugt og það sést best á öflugum fjárfestingum, nýsköpun og metnaði. Það er þessi þróttur, dugnaður og framtíðarsýn sem knýr samfélagið áfram – og það er ekki sjálfgefið, heldur byggir á fólkinu sjálfu.

Fram undan eru spennandi tímar fyrir Hornafjörð: nýr þjóðvegur, hringtorgið góða, uppbygging á nýju verslunarsvæði, nýtt íbúðahverfi mun rísa, nýtt uppsjávarveiðiskip kemur innan skamms, nýr frystiklefi sem er í raun leikbreytir, uppbygging í Hoffelli og samstarf við Landsbyggð um nýjan miðbæ á Höfn – svo aðeins brot sé nefnt. Þetta eru ekki bara hugmyndir á teikniborði, heldur raunveruleg verkefni sem munu hafa áhrif á daglegt líf fólks, atvinnu, þjónustu og samfélagsanda.

Eitt af því sem ég er sérstaklega þakklátur fyrir á þessu kjörtímabili er hið góða og uppbyggilega samstarf sem ríkt hefur í bæjarstjórn. Samstarf meirihlutans, XD og KEX, hefur verið traust og málefnalegt, en ekki síður vil ég leggja áherslu á að samskipti og samtal við aðra flokka hafa verið í heildina jákvæð og uppbyggileg. Við erum heppin hér í Hornafirði að deila að mörgu leyti svipaðri sýn á helstu verkefnin og áherslurnar – að við viljum öll byggja upp fallegt, öflugt og mannvænt sveitarfélag þar sem fólk vill búa, starfa og ala upp börn sín. Þótt ágreiningur sé eðlilegur í lýðræðissamfélagi, hefur umræðan oftar en ekki einkennst af virðingu, lausnamiðaðri nálgun og sameiginlegri ábyrgð gagnvart samfélaginu.

Ég er þakklátur fyrir traustið sem mér og okkur hefur verið sýnt og stoltur af því sem við höfum unnið saman – kjörnir fulltrúar, starfsfólk sveitarfélagsins, fyrirtæki, félagasamtök og íbúar. Hornafjörður er samfélag í sókn – og framtíðin hér er björt.


Fyrir hönd kjörinna fulltrúa X-D lista Sjálfstæðismanna í Hornafirði
Gauti Árnason