Miðvikudagskvölið 4. mars var fundur með öllum tíu frambjóðendum í prófkjöri flokksins fyrir sveitastjórnarkosninganna. Prófkjörið fer fram laugardaginn 14. mars og er utankjörfundur hafinn. Fullt hús var af gestum sem gátu komið og hlustað á ræður frambjóðendanna og gátu svo borið fram spurninga til einstakra frambjóðenda eða til allra. Góðar umræður sköpuðust um hin ýmsu mál sem varða sveitarfélagið okkar og er góður grunnur kominn fyrir stefnumótunarvinnu sem fer síðan á fullt í lok mars.
Nokkrir frambjóðendur hafa nú þegar skrifað greinar um sín helstu stefnumál fyrir prófkjörið sem hægt er að nálgast í flipanum hér að ofan eða hér:
Ef við viljum breytingar, þá þurfum við að taka þátt. Ef mér finnst eitthvað miður eða mætti vera betra, þá spyr ég: Hvað get ég gert? Hvað ætla ég að gera? Á öllum tímaskeiðum í lífi mínu hef ég á einhvern hátt verið að reyna með hegðun minni, hugarfari og verkum að hafa jákvæð áhrif. Í dag vil ég að börn og ungmenni fái þau tækifæri sem ég fékk ekki sem unglingur á Höfn, þannig að ég býð upp á leiklistarnámskeið og ýmiskonar sköpun fyrir þann hóp. Einnig fannst mér vanta hér vinnustofur og verslun með staðbundinni framleiðslu, meiri sjálfbærni, endurvinnslu, félagslega hittinga og fleira þannig að ég opnadi skapandi upplifunarrými. Ég tók eftir mikilli erftispurn frá íbúum og ferðamönnum á vöntun á meiri og fjölbreyttari afþreyingu og ég vatt mér ýmiskonar verkefni því tengt. En í þeirri vinnu hef ég líka rekist á hindranir. Ekki bara persónulegar áskoranir, heldur líka kerfi, kröfur og öfuga hvata sem gerir fólki og fyrirtækjum erfitt með að vaxa og dafna. Samfélagið þarf öfluga máttarstólpa og sveitafélagið verður að styðja við þá. Samfélag þarf líka að vera staður þar sem fólki líður vel. Ég brenn fyrir því að efla tækifæri fólks, sérstaklega barna og ungmenna. Samfélög virka best þegar íbúar eru virkir, velkomnir, hafa tilgang og tækifæri til að vaxa á sinn hátt. Að mínu mati hefur Hornafjörður staðið sig gríðarlega vel þarna, en við verðum alltaf að gera betur. Andleg og líkamleg veikindi, vanlíða, vonleysi, vanvirkni, vímuefnanotkun, kvíði og margt fleira er að aukast, sérstaklega hjá ungu fólki. Og ég hef sérstaka ástríðu og áhuga á því að vinna að betrun þar. Ég kem inn með ferska sýn, fjölbreytta reynslu og mikinn kraft. Ég bið ykkur að kjósa mig í 4. sæti svo að ég geti raunverulega beitt mér á réttum stöðum og haft jákvæð áhrif.
Að búa í samfélagi eins og Sveitarfélaginu Hornafirði er gefandi því hvert okkar er svo mikilvægt fyrir samfélagið. Við höfum öll svo mikið fram að færa, sama hvers kyns við erum, aldur okkar og hver sem uppruni okkar er. Öll skiptum við máli. Ég hef alla tíð verið virkur í félagsstörfum, sungið í kórum, verið í stjórn ungmennafélags og pólitísku starfi. Dýrmæt reynsla sem maður á í reynslubankanum og miðlar svo áfram til annara félaga. Að útdeila verkefnum er lykilatriði til að hópur virki sem best,hvort sem er á vinnustað eða í félagastarfi.
Ég er eiginmaður, faðir og afi og þær stundir sem ég á með fjölskyldunni eru þær bestu í heimi. Ég er mikill náttúruunnandi og veit ekkert betra en að njóta þess að vera úti í íslenskri náttúru og sérstaklega í Lóninu. Ég hef alla tíð fylgst með fótbolta ásamt öðrum íþróttum. Að mínu mati er mikilvægt að börn og ungmenni hafi góðan aðgang að íþróttaiðkun, en miklvægt er að allir hafi aðgang að fjölbreyttri afþreyingu, sama á hvaða aldri við erum.
Aðgengismál fatlaðra ásamt þjónustu við fatlaða einstaklinga hafa alla tíð staðið hjarta mínu nær og ég er glaður að upplifa að við erum að standa okkur vel sem samfélag við okkar besta fólk. Það er loksins til bíll í eigu sveitarfélagsins til að þjónusta fólk í hjólastól. Einnig er ég spenntur fyrir endurnýjun húsnæðisins í Ekru.
Hagasmunir fyrir allt samfélagið eru mínar pólitísku áherslur, málefni fjölskyldna, sama á hvaða aldurskeiði, málefni fyrirtækjanna í sveitarfélaginu, viðhald og uppbygging innviða og eigna samfélagsins. Mikil hagsmunanagæsla er framundan varðandi áframhaldandi uppbyggingu á vegum ríkisins og þar mun ég beita mín. Sama hvort það viðhald vega, fækkun einbreiðra brúa, endurnýjun hafnarmannvirkja, stuðningur við Framhaldsskólann og áfram mætti telja.
Ég heiti Gauti Árnason og býð mig fram í 1.sæti í prófkjöri Sjálfstæðismanna þann 14. mars
Blátt lítið blóm eitt er – ber nafnið; gleymdu‘ ei mér
Það styttist í prófkjör og ég vil nota tækifærið og minna á mig. Ég er ein af tíu frambjóðendum sem sækjast eftir efstu sætum á lista flokksins. Því er ærið verkefni fyrir ykkur kjósendur góðir að finna það fólk sem þið treystið best til að skipa listann. Ég er eiginkona, móðir, dóttir, barnabarn, launþegi, húsnæðiseigandi, íbúi í dreifbýli og svona mætti lengi telja. Ég er Hornfirðingur og vil bjóða fram krafta mína í málefnum sveitarfélagsins með það að markmiði að auka velferð og ánægju íbúa sveitarfélagsins alls. Ég legg mikla áherslu á að Sveitarfélagið Hornafjörður er ekki bara kaupstaðurinn Höfn heldur líka okkar blómlegu sveitir allt í kring. Eftir að hafa sótt atvinnu og menntun á höfuðborgarsvæðinu lá leiðin aftur heim í fjörðin fagra og settumst við hér að. Byggðum okkur hús og gerðum að heimili, stofnuðum fjölskyldu. Líkt og hjá svo mörgum sem eiga börn taka þau og þeirra hugarefni nokkurn vegin yfir manns eigið líf. Velferð og hamingja barnanna er það sem skiptir mestu máli, ég vil leggja mitt af mörkum til að gera enn betur í málefnum barna í sveitarfélaginu. Ég vil beita mér fyrir því að boðið verði upp á fleiri valkosti í þjónusta sveitarfélagins þannig að fólk geti að einhverju leyti sniðið hana að sínum þörfum. Þetta þarf ekki endilega að þýða aukin fjárútlát, stundum er hægt að fara betur með, breyta til eða hagræða. Málaflokkarnir eru margir og málefnin enn fleiri, en það skiptir máli að gleyma engum, að sjá alla – ekki bara þá fyrirferðamestu. Allt eru þetta hlekkir í keðju, við verðum að koma auga á veikasta hlekkinn áður en hann slitnar. Ég vinn mikið með tölur og á gott með að átta mig á slíku efni en mér er einnig annt um fólkið og velferð þess, óháð aldri, búsetu, uppruna eða efnahag. Ég sækist eftir þriðja sæti í prófkjörinu 14. mars næstkomandi. Mundu mig – Ég man þig