Ég gef kost á mér í prófkjöri Sjálfstæðismann í Austur Skaftafellssýslu sem fer fram 14 mars 2026
Ég hef síðustu 4 ár verið forsteti bæjarstjórnar í Sveitarfélaginu Hornafirði ásamt því að sitja í bæjarráði. Einnig hef ég verið fulltrúi sveitarfélagsins í stjórn Sambandi sveitarfélaga á Suðurlandi, SASS.
Á þessum 4 árum hef ég öðlast mikla og dýrmæta reynslu um allt er varðar sveitarfélagið okkar góða. Á þessum árum höfum við lagt mikla áherslu á að styrkja innviði um allt svæðið, t.d. með að efla Slökkviliðið, leggja göngustíga, endurnýja leikvelli, styrkja holræsakerfið. Einnig höfum við skipulagt nýtt íbúðasvæði, Hagahverfi, nýtt verslunar og þjónustusvæði, sem og margt annað stórt og smátt.
Ég hef mikinn metnað fyrir sveitarfélagið okkar sem er í heilmiklum vexti. Fyrirtækin okkar í samfélaginu eru að standi sig gríðarlega vel í krefjandi umhverfi, mikil uppgangur er í ferðþjónustunni og gríðarleg fjárfesting í sjávarútvegi.
Framundan eru miklivæg verkefni og tækifæri. Ég vill halda áfram að vinna að þeirri uppbyggingu sem og þeirri hagsmunagæslu fyrir sveitarfélagið sem er endalaust verkefni.
Ég gef kost á mér í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Austur Skaftafellsýslu þann 14. Mars 2026
