Prófkjör

Gauti Árnason skrifar

Að búa í samfélagi eins og Sveitarfélaginu Hornafirði er gefandi því hvert okkar er svo
mikilvægt fyrir samfélagið. Við höfum öll svo mikið fram að færa, sama hvers kyns við
erum, aldur okkar og hver sem uppruni okkar er. Öll skiptum við máli.
Ég hef alla tíð verið virkur í félagsstörfum, sungið í kórum, verið í stjórn ungmennafélags
og pólitísku starfi. Dýrmæt reynsla sem maður á í reynslubankanum og miðlar svo áfram
til annara félaga. Að útdeila verkefnum er lykilatriði til að hópur virki sem best,hvort sem
er á vinnustað eða í félagastarfi.

Ég er eiginmaður, faðir og afi og þær stundir sem ég á með fjölskyldunni eru þær bestu í
heimi. Ég er mikill náttúruunnandi og veit ekkert betra en að njóta þess að vera úti í
íslenskri náttúru og sérstaklega í Lóninu. Ég hef alla tíð fylgst með fótbolta ásamt öðrum
íþróttum. Að mínu mati er mikilvægt að börn og ungmenni hafi góðan aðgang að
íþróttaiðkun, en miklvægt er að allir hafi aðgang að fjölbreyttri afþreyingu, sama á hvaða
aldri við erum.

Aðgengismál fatlaðra ásamt þjónustu við fatlaða einstaklinga hafa alla tíð staðið hjarta
mínu nær og ég er glaður að upplifa að við erum að standa okkur vel sem samfélag við
okkar besta fólk. Það er loksins til bíll í eigu sveitarfélagsins til að þjónusta fólk í
hjólastól. Einnig er ég spenntur fyrir endurnýjun húsnæðisins í Ekru.

Hagasmunir fyrir allt samfélagið eru mínar pólitísku áherslur, málefni fjölskyldna, sama á
hvaða aldurskeiði, málefni fyrirtækjanna í sveitarfélaginu, viðhald og uppbygging innviða
og eigna samfélagsins. Mikil hagsmunanagæsla er framundan varðandi áframhaldandi
uppbyggingu á vegum ríkisins og þar mun ég beita mín. Sama hvort það viðhald vega,
fækkun einbreiðra brúa, endurnýjun hafnarmannvirkja, stuðningur við Framhaldsskólann
og áfram mætti telja.

Ég heiti Gauti Árnason og býð mig fram í 1.sæti í prófkjöri Sjálfstæðismanna þann 14.
mars