2026-2030, Prófkjör

Úrslit prófkjörs ljós

Talið hefur verið og úrslit eru ljós í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Gauti Árnason heldur sæti sínu sem oddviti listans með 168 greidd atkvæði. Í öðru sæti er Hjördís Edda Olgeirsdóttir með 156 atkvæði, í þriðja sæti er Ásta Steinunn Eiríksdóttir með 204 atkvæði, fjórða sætið skipar Reynir Ásgeirsson með 153 atkvæði, Ágústa Margrét Arnardóttir skipar fimmta sætið með 181 atkvæði og í sjötta sæti er Sindri Ragnarsson með 164 atkvæði.

Á kjörskrá voru 489
Greidd atkvæði voru 329
Auðir seðlar og ógildir voru 7
Kjörsókn var 67%