• Giftur þriggja barna faðir (2, 6 og 8 ára) 

• Sauðfjárbóndi á Kálfafelli í Suðursveit 

• Viðgerðarmaður á öllu mögulegu og virkur í félagsmálum bænda 

• Flutti í Suðursveit árið 2013 og hefur fest þar rætur með fjölskyldu sinni

„Ég býð mig fram því ég brenn fyrir málefnum sveitarfélagsins og vil leggja mitt af mörkum til að brúa betur bilið milli þéttbýlis og dreifbýlis. Við þurfum að vinna betur saman þvert á atvinnugreinar og nýta þau tækifæri sem felast í bæði nýsköpun og öflugri atvinnustarfsemi. Ég mun leggja áherslu á skýrleika í skipulagsmálum og sterka atvinnustefnu sem styður við vöxt og fjölbreytt samfélag.“