Ef við viljum breytingar, þá þurfum við að taka þátt. Ef mér finnst eitthvað miður eða
mætti vera betra, þá spyr ég: Hvað get ég gert? Hvað ætla ég að gera?
Á öllum tímaskeiðum í lífi mínu hef ég á einhvern hátt verið að reyna með hegðun
minni, hugarfari og verkum að hafa jákvæð áhrif.
Í dag vil ég að börn og ungmenni fái þau tækifæri sem ég fékk ekki sem unglingur á
Höfn, þannig að ég býð upp á leiklistarnámskeið og ýmiskonar sköpun fyrir þann
hóp. Einnig fannst mér vanta hér vinnustofur og verslun með staðbundinni
framleiðslu, meiri sjálfbærni, endurvinnslu, félagslega hittinga og fleira þannig að ég
opnadi skapandi upplifunarrými. Ég tók eftir mikilli erftispurn frá íbúum og
ferðamönnum á vöntun á meiri og fjölbreyttari afþreyingu og ég vatt mér ýmiskonar
verkefni því tengt.
En í þeirri vinnu hef ég líka rekist á hindranir. Ekki bara persónulegar áskoranir,
heldur líka kerfi, kröfur og öfuga hvata sem gerir fólki og fyrirtækjum erfitt með að
vaxa og dafna. Samfélagið þarf öfluga máttarstólpa og sveitafélagið verður að styðja
við þá.
Samfélag þarf líka að vera staður þar sem fólki líður vel. Ég brenn fyrir því að efla
tækifæri fólks, sérstaklega barna og ungmenna.
Samfélög virka best þegar íbúar eru virkir, velkomnir, hafa tilgang og tækifæri til að
vaxa á sinn hátt. Að mínu mati hefur Hornafjörður staðið sig gríðarlega vel þarna, en
við verðum alltaf að gera betur. Andleg og líkamleg veikindi, vanlíða, vonleysi,
vanvirkni, vímuefnanotkun, kvíði og margt fleira er að aukast, sérstaklega hjá ungu
fólki. Og ég hef sérstaka ástríðu og áhuga á því að vinna að betrun þar.
Ég kem inn með ferska sýn, fjölbreytta reynslu og mikinn kraft.
Ég bið ykkur að kjósa mig í 4. sæti svo að ég geti raunverulega beitt mér á réttum
stöðum og haft jákvæð áhrif.
