2026-2030, Prófkjör

Úrslit prófkjörs ljós

Talið hefur verið og úrslit eru ljós í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Gauti Árnason heldur sæti sínu sem oddviti listans með 168 greidd atkvæði. Í öðru sæti er Hjördís Edda Olgeirsdóttir með 156 atkvæði, í þriðja sæti er Ásta Steinunn Eiríksdóttir með 204 atkvæði, fjórða sætið skipar Reynir Ásgeirsson með 153 atkvæði, Ágústa Margrét Arnardóttir skipar fimmta sætið með 181 atkvæði og í sjötta sæti er Sindri Ragnarsson með 164 atkvæði.

Á kjörskrá voru 489
Greidd atkvæði voru 329
Auðir seðlar og ógildir voru 7
Kjörsókn var 67%

2026-2030, Prófkjör

Prófkjörsdagur 14. mars

Þann 14. mars ganga Sjálfstæðismenn í Sveitarfélaginu til kosninga í prófkjöri. Það verður sannkölluð lýðræðisveisla í Sjallanum allan laugardaginn og fram eftir kvöldi (sjá dagskrá á mynd)

Kosningarétt hafa þau sem eru með lögheimili í Sveitarfélaginu Hornafirði, eru skráð í Sjálfstæðisflokkinn og ná 18 ára aldri í sveitarstjórnarkosningum þann 16.maí.

2026-2030, Prófkjör

Frambjóðendur í prófkjöri 14.mars 2026

Framboðsfrestur til prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Sveitarfélaginu Hornafirði er liðinn.
Alls bárust 10 framboð.
Þau eru:

Níels Brimar Jónsson
Reynir Ásgeirsson
Sindri Ragnarsson
Steindór Sigurjónsson
Tinna Rut Sigurðardóttir
Þröstur Jóhannsson
Ágústa Margrét Arnardóttir
Ásta Steinunn Eiríksdóttir
Gauti Árnason
Hjördís Edda Olgeirsdóttir

Kynningar á frambjóðendum munu birtast hér á næstu dögum.