Prófkjör

Gauti skrifar

Kæru sjálfstæðismenn í Hornafirði

Nú á laugardaginn 14. Mars göngum við til kosninga í prófkjöri hér í Hornafirði. Þetta er

mikil lýðræðisveisla þar sem 10 einstaklingar gefa kost á sér til setu í efstu sætum

listans okkar til sveitarstjórnarkosninga núna í vor. Þetta er frábært tækifæri sem allir

félagsmenn geta haft hafa áhrif á þann lista sem við komum til með að bjóða fram. Því

er afskaplega mikilvægt að allir þeir sem eru skráðir í Sjálfstæðisflokkinn nýti þetta

tækifæri og kjósi, hvort sem er á kjörstað á laugardag eða kjósi utankjörstaðar í

Sjallanum okkar eða í Valhöll í Reykjavík.

Fyrir 4 árum var ég kjörinn í 1. sæti á lista Sjálfstæðismann fyrir sveitarstjórnar

kosningar 2022. Þar kom saman hópur fólks úr allstaðar úr samfélaginu

sem hefur unnið mjög vel saman, allir í sömu átt.

Þar náðum við frábærum árangri, gleymum því ekki, fengum 3 menn kjörna, fengum

461 atkvæði af 1263 sem kusu, eða 38,3% atkvæða og sitjum núna í meirihluta í

bæjarstjórn. Ég hef haft þann heiður að vera forseti bæjarstjórnar ásamt því að vera

varaformaður bæjarráðs.

Fjöldi verkefna eru framundan og of langt mál að fara telja þau upp hér, en mig langar

sérstaklega að nefna fyrirhugaða uppbyggingu íþrótta og skólamannvirkja hér á Höfn.

Það er löngu tímabært að fara horfa fram á við í þessum málum, elsti hluti

grunnskólans var byggður fyrir 1930 og vonast ég til þess að með ráðningu

verkefnastjóra fyrir verkið komist það áfram og við höfum gæfu til að sameinst um þetta

stóra verkefni, öllum okkar íbúum til hagsbóta, á öllum aldri.

Ég býð mig fram í þessu prófkjöri vegna þess að mér þykir vænt

um samfélagið okkar og trúi því að við getum gert enn betur. Ég hef sterka framtíðarsýn

fyrir okkur, sem byggir á frelsi einstaklinga, á samvinnu aðila, jafnrétti, traustri

fjármálastjórn og ábyrgri uppbyggingu.

Kæru Sjálfstæðismenn,

Ég óska eftir stuðningi ykkar í 1. sætið í prófkjörinu þann 14. mars.

Saman byggjum við upp enn sterkara og samheldnara samfélag.

Það er bara ein leið, og hún er áfram.

Áfram XD – Áfram Hornafjörður