Uncategorized

Greinar frá frambjóðendum og dagurinn í dag.

Mikið líf hefur verið í félagsheimili okkar í dag miðvikudag þar sem frambjóðendur buðu gestum að koma og ræða málin fyrir prófkjörið í morgun. Fjöldi manns nýttu tækifærið og var fullur salur af fólki og gaman að sjá hvað það er mikill áhugi fyrir prófkjörinu.

Í hádeginu var boðið uppá plokkfisk og komu þingmennirnir okkar Guðrún Hafsteinsdóttir og Vilhjálmur Árnason, voru þau með smá framsögu ásamt því að eiga góð samtöl við félagsmenn. Félagsmenn fylltu húsið og góðar umræður sköpuðust um sveitarstjórnarmál ásamt landsmálunum.

Næstu dagar verða líflegir hjá okkur, hægt er að kjósa í prófkjörinu fram á kjördag.
Nánari upplýsingar eru hér:

Einnig hafa nokkrir frambjóðendur sett inn greinar hér að neðan, en einnig er hægt að sjá greinarnar hér.