Uncategorized

Íbúalýðræði

Í dag þykir sjálfsagt að valdhafar boði íbúalýðræði og bjóði almenningi til samtals með fundum, bæði í raunheimum og á rafrænum fundum þar sem íbúar fá að segja sína skoðun á málefnum dagsins og hafa áhrif á gang mála í sínu nær samfélagi. Tækninni fleygir fram og því verður auðveldara að fá fram vilja almennings í hinum ýmsu málum sem snúa að þeirra daglega lífi 

Þetta er fyrirbæri sem ég er ákaflega hrifin af.  Ástæðan fyrir því er sú, að ég veit að ég er ekki með bestu úrlausnina í öllum málum og á það nú við um fleiri. 

Þess vegna eru meiri líkur á skynsamlegri niðurstöðu ef fleiri koma að borðinu þegar tekin er ákvörðun. Það er líka auðveldara að rökstyðja framkvæmdir þar sem íbúar hafa fengið að segja sína skoðun á málinu. Ég held að íbúar sem fá að ráða einhverju um hverfið sitt, leiksvæði, göngustíga eða hvað sem gæti bætt nærumhverfið, séu sáttari við breytingarnar ef þau eru höfð með í ráðum.  

Núverandi meirihluti í bæjarstjórn hefur verið duglegur að boða íbúalýðræði á þessu kjörtímabili. Það er ekki sjálfgefið að stjórnvöld útdeili völdum og treysti íbúum fyrir ákvörðunum verkefna. Það hafa verið  fundir um ýmis málefni þar sem íbúar sveitarfélagsins hafa fengið að segja sína skoðun á málefnum dagsins. Íbúar hafa verið spurðir um þeirra skoðanir á fjölmörgum málefnum t.d. skipulags málum , nýjum íbúðahverfum, útivistarsvæðum og hvar íbúar vilji sjá bæjargarð/útivistargarð fyrir bæjarbúa svo eitthvað sé nefnt. 

Og þá komum við að kjarna málsins, til þess að þetta geti orðið að raunverulegu íbúa lýðræði þá þarf fara eftir þeim  niðurstöðum sem flestir velja. 

Því miður hafa engar af hugmyndum íbúa sem tóku þátt í þessum verkefnum meirihlutans, orðið að veruleika. Hvort sem að íbúar hafa valið nýtt íbúðahverfi , bent á leiksvæði í sínu hverfi eða bæjargarðurinn sem fékk langflest atkvæði á miðsvæðinu í  verkefninu um Norræna sjálfbæra bæi þar sem íbúar fengu að velja sína „staði“ í bænum til uppbyggingar. 

 Á sameiginlegum framboðsfundi í Nýheimum, nýverið, gáfu framsóknarmenn það út að ekki yrði útbúinn bæjargarður á miðsvæðinu,  þar sem Humarhátíðin hefur verið haldi síðustu ár, við miklar vinsældir bæjarbúa. 

Frekar ætti að styrkja götumyndina með því að byggja 2 hæða hús á lóð 38 við Hafnarbraut sem mun útiloka bæjargarð á þessum stað og að öllum líkindum varpa skugga á sundlaugina á vorin og haustin. 

Það eina sem klikkaði hjá meirihluta Framsóknarflokksins var að gera það sem felst í  íbúalýðræðinu, að fara eftir því sem fólkið valdi.  Annars heitir það ekki lýðræði.

Páll Róbert Matthíasson  

14. Sæti  lista Sjálfstæðisflokksins  

Umhverfis- og skipulagsmál, Uncategorized

Samgöngur fyrir alla í Sveitarfélaginu Hornafirði

Ein af grunn forsendum þess að sveitarfélagið geti stækkað og dafnað eru öruggar og góðar samgöngur. Ný veglína í Öræfum kemur til með að taka af hættulegar einbreiðar brýr og óveðurskafla sem oft valda hættu. Ný veglína kemur til með að stytta þjóðveg 1 verulega. Ágangur sjávar við Jökulsárlón veldur mér áhyggjum. Þar hafa menn sofið á verðinum. Þar þarf að verja land og mannvirki gegn ágangi sjávar. Vegna ágangs sjávar og sandfoks sem veldur stór tjóni við Jökulsárlón hefur ítrekað komið til ótímabærrar lokunar á þjóðvegi 1. Nú þegar hefur þurft að flytja raflínur og þjóðveg 1 vegna landrofs. Þá þarf að komast á framkvæmdar áætlun ný tvíbreið brú yfir Kolgrímu. Ný veglína í Lóni þarf einnig að koma til framkvæmdar. Lónsheiðargöngum eigum við að taka fagnandi og styðja við bakið á þeirri framkvæmd. Núverandi þjóðvegur í þéttbýli liggur við grunnskólabyggingar og íþróttamannvirki. Þar fer um öll þungaumferð frá hafnarsvæði og iðnaðarsvæði sveitarfélagsins. Því þurfum við að ákveða hvar við viljum leggja Þjóðveginn í þéttbýli. Flugvöll sveitarfélagsins þurfum við að standa vörð um svo að hann verði ekki lagður af. Hann er okkar öryggistæki og samgöngutæki. Hafnarmannvirkjum sveitarfélagsins þarf að halda við og klára kanta og gera höfnina öruggari og fallegri ásýndar með grjóthleðslum , stálþilum o.fl. Innsiglingin þarf að vera fær sjófarendum öllum. Grynnslin þarf að dýpka og halda efni þar frá. Rannsaka þarf efnisburð svo hægt sé að bregðast við til framtíðar. 

Skipulagsvinna má ekki standa í vegi fyrir því að þetta allt sem hér er ofan talið komist til framkvæmda. 

Ég hlakka til að taka þátt í því að koma þessum verkefnum í framkvæmd með ykkar stuðningi við Sjálfstæðisflokkinn á kjördag 14.maí 2022, X-D!

Skúli Ingólfsson, verkstjóri.

3.sæti Sjálfstæðisflokksins, Sveitarfélagið Hornafjörður fyrir alla.

Uncategorized

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins á ferðinni

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins eru nú á sinni árlegu hringferð um landið og komu við á Höfn þriðjudaginn 3. maí.

Tóku frambjóðendur í Sjálfstæðisflokksins í  sveitarstjórnarkosningunum á móti þeim og fóru með þá í heimsóknir í fyrirtæki og einnig var hjúkrunarheimilið okkar heimsótt. Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, kynnti sér aðstöðuna þar. Í framhaldinu fór hann yfir stöðuna um framkvæmd nýs hjúkrunarheimilis. Hann færði okkur þær fréttir að fjármagn er til. Hann hafði strax samband við heilbrigðisráðherra Willum Þór Þórsson og upplýsti hann um stöðu mála, en ljóst var að honum hafði ekki verið kynnt málið. Í framhaldi af samtali þeirra ætlaði Willum að setja sig inní málið og afgreiða það frá heilbrigðisráðuneytinu til fjármálaráðuneytis. Vonandi tekst að ljúka þeirri vinnu á næstu dögum er málið nú komið á skrið og hafist verður handa á allra næstu dögum við að ljúka þeirri vinnu sem þarf áður en að fyrsta skóflustungan verður. Þetta eru frábærar fréttir fyrir okkur Austur-Skaftfellinga.

Í hádeginu var svo opinn súpufundur með þingmönnum og sátu þar þingmenn fyrir svörum. Málefni svæðisins voru rædd og góðar umræður sköpuðust.

Við þökkum þingflokknum kærlega fyrir komuna og vonum að farið verður í þær aðgerðir sem ræddar voru á fundinum.

Hér er hægt að sjá nokkrar myndir frá deginum.

Uncategorized

Þingmenn á ferðinni

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins verða á ferðinni á Höfn þriðjudaginn 3. maí.
Þau fara um og heimsækja fyrirtæki og funda með Sveitarfélaginu.

Boðið er uppá súpu í Sjálfstæðishúsinu við Kirkjurbraut 3 á þriðjudaginn frá 12-13.

Allir velkomnir

Uncategorized

Umhverfi fyrir alla

Níels Brimar Jónsson

Níels Brimar Jónsson heiti ég og skipa 13. sæti Sjálfstæðisflokksins á Hornafirði.

Ég er þrítugur, mentaður málarameistari og vinn hjá Málningarþjónustu Horna með föður mínum og fleiri höfðingjum.

Èg er í sambúð með Þóru Birnu Jónsdóttir og eigum við 3 börn saman, Emilíu Þöll 5 ára, Reynar Þór 3 ára og Fanndísi Marý 1 árs.

Út frà því má kannski áætla að ég hef mikinn áhuga á því að móta sveitafélagið okkar á þann hátt að börnin okkar, sem eru jú framtíð sveitafélagsins, búi við sem bestar aðstæður í framtíðinni.

Umhverfis- og loftslagsmál:

Sveitafélagið Hornafjörður á að vera leiðandi í umhverfis- og loftslagsmálum. 

Við sem sveitafélag og einstaklingar höfum alla burði til þess að huga betur að nærumhverfinu okkar, hvort sem það á sér stað í sorpmálum og endurvinnslu eða bara í almennri ákvörðunartöku í allri neyslu heimila.

Það að skilja eftir okkur samfélag fyrir næstu kynslóðir, sem bera virðingu fyrir umhverfinu, ætti að vera nægur hvati fyrir alla.

Opin svæði, leikvellir og uppgræðsla:

Ég hef mikinn áhuga á fallegu umhverfi, görðum og gróðri og tel ég foreldra mína hafa smitað mig af þeirri dellu enda mikið gróðuráhugafólk.

Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að opnu svæðin okkar, leikvellir og fleiri staðir sem búa yfir miklum möguleikum séu ekki í nógu góðu standi, leiktæki oftar en ekki í niðurníðslu og almennt ekki hugsað vel um svæðin.

Ég vill sjá að sveitafélagið ráði skrúðgarðyrkjumeistara í fullt starf sem allra fyrst sem tæki þessi mál í sínar hendur, bætti almennt opnu svæðin okkar, mundi auka og bæta umtalsvert þá leikvelli sem hér eru í sveitafélaginu ásamt þvi að huga að stóraukningu í gróðursetningu trjáa og gróðurs með það að leiðarljósi að auka skjól og fegra sveitafélagið okkar.

Ég mundi einnig vilja sjá skrúðgarðinn sem Róbert hefur talað fyrir, á miðsvæðinu okkar við sundlaugina verða að veruleika.

Endurvekja gosbrunninn, gróðursetja fallegar plöntur og tré, uppfæra og auka leiktæki, og gera alvöru miðbæjarsvæði fyrir alla íbúa sveitafélagsins, þar sem gaman væri að setjast niður og leyfa börnunum að leika sér.

Svo er mikilvægt að sveitafélagið sýni fordæmi og hafi snyrtilegt og fallegt umhverfi í kringum byggingar sínar, því það smitar út frá sér.

Jafnvel væri gaman ef sveitafélagið hefði einhvern hvata fyrir einstaklinga til þess að hafa snyrtilegt í kringum eignir sínar. 

Það væri t.d. hægt að gera meira úr viðurkenningu fyrir garð/lóð ársins. 

Vera jafnvel með vegleg verðlaun sem stuðla enn frekar að áframhaldandi viðhaldi húsa og lóða í sveitafélaginu. 

Þá væri einnig hægt að vera með dómnefnd í stað þess að þurfa að senda inn tilnefningar, eins og núverandi fyrirkomulag er, og jafnvel veita þau við hátíðlega athöfn á Humarhátíð.

Möguleikarnir eru óendanlegir, en saman stuðlum við að jákvæðu og fallegu sveitafélagi með góða umhverfisvitund, fyrir komandi kynslóðir.

Uncategorized

Framundan hjá okkur

Laugardagurinn 30. apríl 2022

11:00 – Súpufundur í Sjálfstæðishúsinu
Létt spjall þar sem farið verður yfir stefnumál flokksins fyrir kosningarnar
Allir velkomnir

20:00 – Opnun kosningaskrifstofu Sjálfstæðisflokksins.
Frambjóðendur bjóða til opnunnar kosningaskrifstofu og verða léttar veitingar í boði.
Allir velkomnir
——————————


Mánudagurinn 2. maí 2022
17:00-18:30 Sameiginlegur fundur alla framboða í Öræfum

20:00-21:30 Sameiginlegur fundur allra framboða í Suðursveit
————————————-

Þriðjudagurinn 3. maí 2022
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins verður á ferðinni.
Nánar auglýst síðar.

20:00-22:00 Sameiginlegur fundur allra framboða í Nýheimum
——————————-

Kosningaskrifstofan okkar verður opin alla virka daga í maí frá kl 17:00-19:00
Allir velkomnir