Prófkjör – kjörfundur

Laugardaginn 14. mars kl. 10.00 – 16.00 Sjallanum, Kirkjubraut 3, 780 Höfn

Samkvæmt prófkjörsreglum Sjálfstæðisflokksins er þátttaka í prófkjöri heimil:

  • Öllum fullgildum meðlimum sjálfstæðisfélaganna í Sveitarfélaginu Hornafirði sem þar eru búsettir.
  • Þeim stuðningsmönnum Sjálfstæðisflokkins sem eiga munu kosningarétt í Sveitarfélaginu Hornafirði í komandi sveitastjórnarkosningum og undirritað hafa inngöngubeiðni í sjálfstæðisfélag Austur – Skaftafellssýslu fyrir lok kjörfundar og teljast þar með komnir á flokkskrá.
  • Hægt er að skrá sig í flokkinn á netinu og einnig á kjörstað meðan á kjörfundi stendur
  • Kjósa skal minnst 4 og mest 6 frambjóðendur, hvorki fleiri né færri.
  • Kosið skal með því að setja tölustafina 1-6 fyrir framan nöfn frambjóðenda. Þannig skal kjósandi setja töluna 1 fyrir framan nafn þess frambjóðenda sem hann vill að hljóti fyrsta sætið í prófkjörinu og 2 fyrir framan nafn þess sem hann vill að hljóti annað sæti og þannig koll af kolli þar til kosnir hafa verið 4 að lágmarki og að hámarki 6 frambjóðendur.
  • Yfirstrikanir gera kjörseðil ógildan

Hér má sjá sýnishorn af kjörseðil

Hægt verður að kjósa utan kjörfundar einsog hér segir: