Ágústa Margrét Arnardóttir býður sig fram í 4. sæti.
Ég er fædd og uppalin á Hornafirði og hef sterka tengingu við samfélagið og fólkið sem þar býr. Eftir að hafa búið og starfað víða, meðal annars í 18 ár á Djúpavogi, flutti ég aftur heim á Höfn með skýran vilja og kraft til að taka virkan þátt í uppbyggingu sveitarfélagsins.
Ég er fimm barna móðir og legg ríka áherslu á farsæld barna og fjölskyldna. Ég er menntaður hönnuður og markþjálfi og samnýti þá menntun í ýmiskonar verkefni sem hafa forvarnar- og fræðslugildi td. býð ég upp á leiklistar- og listnámskeið fyrir börn og kenni leiklist við grunnskóla hornafjarðar. Ég rek skapandi upplifunarþjónustu og býð meðal annars upp á námskeið, viðburði, hönnun, framleiðslu og vörusölu.
Ég hef víðtæka reynslu úr atvinnulífinu – úr sjávarútvegi, ferðaþjónustu og eigin rekstri – og þekki vel þær áskoranir og tækifæri sem felast í því að reka fyrirtæki og skapa störf í litlu samfélagi. Þá hef ég einnig starfað sem mannauðsstjóri og unnið að stefnumótun, skipulagi og uppbyggingu.
Ég býð fram krafta mína með það að markmiði að stuðla að ábyrgri uppbyggingu, sterkari innviðum og auknum tækifærum og farsæld fyrir alla íbúa Hornafjarðar.

______________________
5. mars 2026
Ef við viljum breytingar, þá þurfum við að taka þátt. Ef mér finnst eitthvað miður eða
mætti vera betra, þá spyr ég: Hvað get ég gert? Hvað ætla ég að gera?
Á öllum tímaskeiðum í lífi mínu hef ég á einhvern hátt verið að reyna með hegðun
minni, hugarfari og verkum að hafa jákvæð áhrif.
Í dag vil ég að börn og ungmenni fái þau tækifæri sem ég fékk ekki sem unglingur á
Höfn, þannig að ég býð upp á leiklistarnámskeið og ýmiskonar sköpun fyrir þann
hóp. Einnig fannst mér vanta hér vinnustofur og verslun með staðbundinni
framleiðslu, meiri sjálfbærni, endurvinnslu, félagslega hittinga og fleira þannig að ég
opnadi skapandi upplifunarrými. Ég tók eftir mikilli erftispurn frá íbúum og
ferðamönnum á vöntun á meiri og fjölbreyttari afþreyingu og ég vatt mér ýmiskonar
verkefni því tengt.
En í þeirri vinnu hef ég líka rekist á hindranir. Ekki bara persónulegar áskoranir,
heldur líka kerfi, kröfur og öfuga hvata sem gerir fólki og fyrirtækjum erfitt með að
vaxa og dafna. Samfélagið þarf öfluga máttarstólpa og sveitafélagið verður að styðja
við þá.
Samfélag þarf líka að vera staður þar sem fólki líður vel. Ég brenn fyrir því að efla
tækifæri fólks, sérstaklega barna og ungmenna.
Samfélög virka best þegar íbúar eru virkir, velkomnir, hafa tilgang og tækifæri til að
vaxa á sinn hátt. Að mínu mati hefur Hornafjörður staðið sig gríðarlega vel þarna, en
við verðum alltaf að gera betur. Andleg og líkamleg veikindi, vanlíða, vonleysi,
vanvirkni, vímuefnanotkun, kvíði og margt fleira er að aukast, sérstaklega hjá ungu
fólki. Og ég hef sérstaka ástríðu og áhuga á því að vinna að betrun þar.
Ég kem inn með ferska sýn, fjölbreytta reynslu og mikinn kraft.
Ég bið ykkur að kjósa mig í 4. sæti svo að ég geti raunverulega beitt mér á réttum
stöðum og haft jákvæð áhrif.
12.mars 2026
Mér líður eins og ég hafi verið á hraðnámskeiði í pólitík og sveitarstjórnarmálum síðan ég ákvað að sækjast eftir 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hornafirði sem fram fer næstkomandi laugardag.
Ég hef fengið mikla innsýn og hvata frá reynslumeira fólki innan og utan stjórnsýslunnar, úr öllum flokkum og óflokksbundið um hvernig stjórnir, ráð, nefndir, lög, reglugerðir, ferlar og fleira virkar.
Ég hef lært mikið, áhugi minn hefur aukist og ég finn enn betur að ég vil taka þátt í þeim fjölmörgu og fjölbreyttu verkefnum og áskorunum sem sveitastjórnarfólk þarf að takast á við.
Sjálfsöryggi mitt hefur aukist og ég veit að þeir kostir sem ég bý yfir munu koma sér vel.
Stjórnsýslan þarf að vera til fyrirmyndar og tileinka sér það sem við viljum sjá í börnunum okkar: jákvæðni, heiðarleika, hugrekki, kraft, lausnamiðun, samskiptafærni, samvirkni og sjálfstæði.
Þannig skapast ánægja, sátt og traust.
Í slíku umhverfi hefur fólk meiri tíma til góðra verka og tími gefst til að rækta túnið í stað þess að vera stöðugt að slökkva elda.
Efsta stjórn sveitarfélagsins verður að vita og skilja hvar eru eldar, ákveða hvernig á að slökkva þá og hafa hugrekki til að gera það. Ef ekki er farið eftir verkferlum, verklýsingum og vinnusiðferði sveitarfélagsins þarf að taka á því – til dæmis með því að skoða verkferla, verklýsingar og vinnubrögð.
Ánægja, sátt og traust næst ekki í meðvirku, þreyttu, streittu og neikvæðu samfélagi.
Fyrir mér eru velferðarmál og atvinnumál samofin.
- Fólki þarf að líða vel og vera öruggt til að geta verið virkt og lagt sitt af
mörkum. - Öflugt atvinnulíf skapar tekjur sem gera okkur kleift að byggja upp sterka
innviði og minnka álögur á íbúa.
Þannig búum við til jákvæðan spíral og byggjum upp samfélag þar sem bæði fólk og
fyrirtæki geta vaxið og dafnað.
Ég vil leggja áherslu á þessa málaflokka til þess að hámarka farsæld og tækifæri fyrir
alla íbúa sveitafélagsins.
Þannig búum við til jákvæðan spíral og byggjum upp samfélag þar sem bæði fólk og fyrirtæki geta vaxið og dafnað.
Ég vil leggja áherslu á þessa málaflokka til þess að hámarka farsæld og tækifæri fyrir alla íbúa sveitafélagsins.