Í kjölfar þeirra áskorana sem ég hef fengið síðustu vikurnar hef ég ákveðið að gefa kost á mér í þriðja sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Ég bý á Bæjarhól í Nesjum með Sigfinni Mar Þrúðmarssyni og börnunum okkar þremur en þau eru tveggja, fimm og sjö ára. Við ákváðum að setjast hér að eftir 5 ár á höfuðborgarsvæðinu þar sem við sóttum okkur menntun, tímabundna atvinnu og lífsreynslu. Stefnan var alltaf að flytja aftur heim en þessi tími fjarri heimahögunum var góður og maður fór að meta enn frekar allt sem Hornafjörður hefur upp á að bjóða. Ég er hagfræðingur að mennt og við heimkomu fékk ég vinnu sem aðalbókari hjá Skinney-Þinganes og hef verið þar síðan. Eftir að krakkarnir fæddust er ég enn þakklátari fyrir að geta búið hér og fá að ala börnin mín upp í litlu samfélagi og ákveðnu hæglæti, nálægt fólkinu okkar og náttúrunni.
Mér er annt um nærumhverfið og hef sinnt félagsmálum í minni heimasveit, hef verið virk félagskona í kvenfélaginu Vöku og setið í stjórn ungmennafélagsins Mána.
Síðasta kjörtímabil bauðst ég til að starfa í íbúaráði fyrir Nes og Lón. Það sem hefur áunnist þar er neisti sem meðal annars fær mig til að bjóða fram krafta mína til að gera gott samfélag enn betra.

___________________________________________
5. mars 2026
Blátt lítið blóm eitt er – ber nafnið;
gleymdu‘ ei mér
Það styttist í prófkjör og ég vil nota tækifærið og minna á mig. Ég er ein af tíu
frambjóðendum sem sækjast eftir efstu sætum á lista flokksins. Því er ærið verkefni
fyrir ykkur kjósendur góðir að finna það fólk sem þið treystið best til að skipa listann.
Ég er eiginkona, móðir, dóttir, barnabarn, launþegi, húsnæðiseigandi, íbúi í dreifbýli
og svona mætti lengi telja. Ég er Hornfirðingur og vil bjóða fram krafta mína í
málefnum sveitarfélagsins með það að markmiði að auka velferð og ánægju íbúa
sveitarfélagsins alls. Ég legg mikla áherslu á að Sveitarfélagið Hornafjörður er ekki
bara kaupstaðurinn Höfn heldur líka okkar blómlegu sveitir allt í kring.
Eftir að hafa sótt atvinnu og menntun á höfuðborgarsvæðinu lá leiðin aftur heim í
fjörðin fagra og settumst við hér að. Byggðum okkur hús og gerðum að heimili,
stofnuðum fjölskyldu. Líkt og hjá svo mörgum sem eiga börn taka þau og þeirra
hugarefni nokkurn vegin yfir manns eigið líf. Velferð og hamingja barnanna er það
sem skiptir mestu máli, ég vil leggja mitt af mörkum til að gera enn betur í málefnum
barna í sveitarfélaginu.
Ég vil beita mér fyrir því að boðið verði upp á fleiri valkosti í þjónusta sveitarfélagins
þannig að fólk geti að einhverju leyti sniðið hana að sínum þörfum. Þetta þarf ekki
endilega að þýða aukin fjárútlát, stundum er hægt að fara betur með, breyta til eða
hagræða.
Málaflokkarnir eru margir og málefnin enn fleiri, en það skiptir máli að gleyma
engum, að sjá alla – ekki bara þá fyrirferðamestu. Allt eru þetta hlekkir í keðju, við
verðum að koma auga á veikasta hlekkinn áður en hann slitnar.
Ég vinn mikið með tölur og á gott með að átta mig á slíku efni en mér er einnig annt
um fólkið og velferð þess, óháð aldri, búsetu, uppruna eða efnahag.
Ég sækist eftir þriðja sæti í prófkjörinu 14. mars næstkomandi.
Mundu mig – Ég man þig
11. mars 2026
Ég ætla að kjósa að líta á sveitastjórnarkosningarnar sem ákveðið ferðalag. Við
munum millilenda laugardaginn 14.mars með prófkjöri okkar sjálfstæðismanna á
Hornafirði áður en við höldum áfangastað, kjördag sveitastjórnarkosninga 16.maí nk.
Ég fór af stað eftir sterka áskorun og ég vona að ég sé að standa undir henni. Ég vil
ná árangri bæði sem einstaklingur og ná settum markmiðum í prófkjörinu, en einnig
fyrir samfélagið. Með í mínum bakpoka eru meðal annars heiðarleiki, vinnusemi,
rökhugsun og staðfesta ásamt nýjum sjónarhornum. Ég er skipulögð, legg mig fram
við að vinna vel með öðrum og á auðvelt með að setja mig í spor annarra. Þetta eru
mannkostir sem ég tel að skipti máli þegar teknar eru stórar ákvarðanir.
Nú þegar styttist í fyrsta áfangastað vona ég að kjósendur hafi fengið nægar
upplýsingar til að gera upp hug sinn. Ljóst er að við erum mörg að reyna ná lausum
sætum í vélina fyrir næsta legg, kosningabaráttuna. Þar sem sætaframboð er
takmarkað skiptir hvert atkvæði enn meira máli. Einhverjir munu heltast úr lestinni en
þeir sem ná markmiðum sínum og þiggja þau sæti sem þeim býðst, tel ég að séu
betur í stakk búnir en ef þessi auka krókur hefði ekki verið farinn. Ég er í það minnsta
búin að vaxa mikið á síðustu vikum og vona að ég fái tækifæri til að koma sterk inn
og læra enn meira og leggja samfélaginu lið.
Ég óska eftir stuðningi ykkar í prófkjörinu 14. mars nk. En einnig er hægt að kjósa
utankjörfundar á Höfn og í Reykjavík sem hér segir:

Með von um þitt atkvæði í þriðja sætið,
Ásta Steinunn