Gauti Árnason

Ég gef kost á mér í prófkjöri Sjálfstæðismann í Austur Skaftafellssýslu sem fer fram 14 mars 2026

Ég hef síðustu 4 ár verið forsteti bæjarstjórnar í Sveitarfélaginu Hornafirði ásamt því að sitja í bæjarráði. Einnig hef ég verið fulltrúi sveitarfélagsins í stjórn Sambandi sveitarfélaga á Suðurlandi, SASS.

Á þessum 4 árum hef ég öðlast mikla og dýrmæta reynslu um allt er varðar sveitarfélagið okkar góða. Á þessum árum höfum við lagt mikla áherslu á að styrkja innviði um allt svæðið, t.d. með að efla Slökkviliðið, leggja göngustíga, endurnýja leikvelli, styrkja holræsakerfið. Einnig höfum við skipulagt nýtt íbúðasvæði, Hagahverfi, nýtt verslunar og þjónustusvæði, sem og margt annað stórt og smátt.

Ég hef mikinn metnað fyrir sveitarfélagið okkar sem er í heilmiklum vexti. Fyrirtækin okkar í samfélaginu eru að standi sig gríðarlega vel í krefjandi umhverfi, mikil uppgangur er  í ferðþjónustunni og gríðarleg fjárfesting í sjávarútvegi.

Framundan eru miklivæg verkefni og tækifæri. Ég vill halda áfram að vinna  að þeirri uppbyggingu sem og þeirri hagsmunagæslu fyrir sveitarfélagið sem er endalaust verkefni.

Ég gef kost á mér í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Austur Skaftafellsýslu þann 14. Mars 2026

________________________

5. mars 2026

Að búa í samfélagi eins og Sveitarfélaginu Hornafirði er gefandi því hvert okkar er svo
mikilvægt fyrir samfélagið. Við höfum öll svo mikið fram að færa, sama hvers kyns við
erum, aldur okkar og hver sem uppruni okkar er. Öll skiptum við máli.
Ég hef alla tíð verið virkur í félagsstörfum, sungið í kórum, verið í stjórn ungmennafélags
og pólitísku starfi. Dýrmæt reynsla sem maður á í reynslubankanum og miðlar svo áfram
til annara félaga. Að útdeila verkefnum er lykilatriði til að hópur virki sem best,hvort sem
er á vinnustað eða í félagastarfi.
Ég er eiginmaður, faðir og afi og þær stundir sem ég á með fjölskyldunni eru þær bestu í
heimi. Ég er mikill náttúruunnandi og veit ekkert betra en að njóta þess að vera úti í
íslenskri náttúru og sérstaklega í Lóninu. Ég hef alla tíð fylgst með fótbolta ásamt öðrum
íþróttum. Að mínu mati er mikilvægt að börn og ungmenni hafi góðan aðgang að
íþróttaiðkun, en miklvægt er að allir hafi aðgang að fjölbreyttri afþreyingu, sama á hvaða
aldri við erum.
Aðgengismál fatlaðra ásamt þjónustu við fatlaða einstaklinga hafa alla tíð staðið hjarta
mínu nær og ég er glaður að upplifa að við erum að standa okkur vel sem samfélag við
okkar besta fólk. Það er loksins til bíll í eigu sveitarfélagsins til að þjónusta fólk í
hjólastól. Einnig er ég spenntur fyrir endurnýjun húsnæðisins í Ekru.
Hagasmunir fyrir allt samfélagið eru mínar pólitísku áherslur, málefni fjölskyldna, sama á
hvaða aldurskeiði, málefni fyrirtækjanna í sveitarfélaginu, viðhald og uppbygging innviða
og eigna samfélagsins. Mikil hagsmunanagæsla er framundan varðandi áframhaldandi
uppbyggingu á vegum ríkisins og þar mun ég beita mín. Sama hvort það viðhald vega,
fækkun einbreiðra brúa, endurnýjun hafnarmannvirkja, stuðningur við Framhaldsskólann
og áfram mætti telja.
Ég heiti Gauti Árnason og býð mig fram í 1.sæti í prófkjöri Sjálfstæðismanna þann 14.
mars


11. mars 2026
Kæru sjálfstæðismenn í Hornafirði

Nú á laugardaginn 14. Mars göngum við til kosninga í prófkjöri hér í Hornafirði. Þetta er

mikil lýðræðisveisla þar sem 10 einstaklingar gefa kost á sér til setu í efstu sætum

listans okkar til sveitarstjórnarkosninga núna í vor. Þetta er frábært tækifæri sem allir

félagsmenn geta haft hafa áhrif á þann lista sem við komum til með að bjóða fram. Því

er afskaplega mikilvægt að allir þeir sem eru skráðir í Sjálfstæðisflokkinn nýti þetta

tækifæri og kjósi, hvort sem er á kjörstað á laugardag eða kjósi utankjörstaðar í

Sjallanum okkar eða í Valhöll í Reykjavík.

Fyrir 4 árum var ég kjörinn í 1. sæti á lista Sjálfstæðismann fyrir sveitarstjórnar

kosningar 2022. Þar kom saman hópur fólks úr allstaðar úr samfélaginu

sem hefur unnið mjög vel saman, allir í sömu átt.

Þar náðum við frábærum árangri, gleymum því ekki, fengum 3 menn kjörna, fengum

461 atkvæði af 1263 sem kusu, eða 38,3% atkvæða og sitjum núna í meirihluta í

bæjarstjórn. Ég hef haft þann heiður að vera forseti bæjarstjórnar ásamt því að vera

varaformaður bæjarráðs.

Fjöldi verkefna eru framundan og of langt mál að fara telja þau upp hér, en mig langar

sérstaklega að nefna fyrirhugaða uppbyggingu íþrótta og skólamannvirkja hér á Höfn.

Það er löngu tímabært að fara horfa fram á við í þessum málum, elsti hluti

grunnskólans var byggður fyrir 1930 og vonast ég til þess að með ráðningu

verkefnastjóra fyrir verkið komist það áfram og við höfum gæfu til að sameinst um þetta

stóra verkefni, öllum okkar íbúum til hagsbóta, á öllum aldri.

Ég býð mig fram í þessu prófkjöri vegna þess að mér þykir vænt

um samfélagið okkar og trúi því að við getum gert enn betur. Ég hef sterka framtíðarsýn

fyrir okkur, sem byggir á frelsi einstaklinga, á samvinnu aðila, jafnrétti, traustri

fjármálastjórn og ábyrgri uppbyggingu.

Kæru Sjálfstæðismenn,

Ég óska eftir stuðningi ykkar í 1. sætið í prófkjörinu þann 14. mars.

Saman byggjum við upp enn sterkara og samheldnara samfélag.

Það er bara ein leið, og hún er áfram.

Áfram XD – Áfram Hornafjörður