Kæru félagar
Ég sækist eftir 1. – 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi kosningar í vor. Ég hef starfað í bæjarstjórn sveitarfélagsins síðustu 4 ár og safnað dýrmætri reynslu sem ég vil nýta áfram og byggja enn frekar á til góðra verka. Í upphafi kjörtímabils tók ég sæti sem varaformaður atvinnu- og menningarmálanefndar og í lok þess tók ég við formennsku í umhverfis- og skipulagsnefnd, ég lít á það sem merki um traust liðsfélaga minna. Ásamt þessu hef ég sinnt ýmsum öðrum störfum á vetvangi stjórnmálanna á síðustu fjórum árum. Ég get sagt af sannfæringu að ég hef lagt mig alla fram á líðandi kjörtímabili, fært til þess ýmsar fórnir á leiðinni en allra helst hef ég lært meira en mig óraði fyrir. Ég er föst fyrir, óhrædd við krefjandi aðstæður en einnig sveigjanleg. Ég tel þetta góða kosti í forystu flokksins til að skapa öfluga liðsheild, leiða hana áfram og eiga í virku samtali við grasrótina allt tímabilið.
Í aðdraganda prófkjörs hef ég fundið fyrir kröftugum meðbyr með mínu framboði og þakka innilega fyrir það. Núna legg ég þetta í ykkar hendur um leið og ég óska eftir áframhaldandi trausti.
Atkvæðin skipta máli sem aldrei fyrr.
