Níels Brimar Jónsson

Níels Brimar Jónsson heiti ég, 34 ára Hornfirðingur í húð og hár, 3 barna faðir, maki og málarameistari. Ég ætla að gefa kost á mér í 3.-4. sæti í komandi prófkjöri hjá Sjálfstæðisflokknum á Höfn í Hornafirði.

Ég brenn fyrir uppbyggingu sveitafélagsins alls, hvort sem hún á sér stað í auknum tækifærum í húsnæðismálum og lóðamálum, tækifærum okkar flottu heimafyrirtækja til þess að efla sig og dafna, eða bara bættri þjónustu og möguleikum íbúanna sem búa í okkar góða samfélagi. Lýðheilsumál eru mér einnig ofarlega á lista, og þar er ég að horfa til eflingar íþróttaiðkunar, aðstöðu, og hvatningu krakkanna okkar til þess að taka þátt og fyrst og fremst hafa jöfn tækifæri til þess að taka þátt.

Flott starf hefur verið unnið seinustu ár, en það eru alltaf tækifæri til þess að gera betur og meira. Ég tel mig vera góðan einstakling til þess að vera partur af þeirri vegferð og hafa góð áhrif á samfélagið okkar næstu ár.

 

Takk fyrir mig.

Níels Brimar Jónsson
3.-4. Sæti XD