Reynir Ásgeirsson

Reynir Ásgeirsson heiti ég og hef ég búið á Hornafirði óslitið öll mín 32 ár. Ég lauk stúdents prófi frá Framhaldskóla Austur Skaftfellinga 2013, eftir það hóf ég uppbyggingu  í ferðaþjónustu á Seljavöllum Hornafirði og hef ég unnið í kringum það síðan samhliða annari uppbyggingu á Hornafirði.

Stefna mín er skýr, ég vil stuðla að öflugu atvinnulífi þar sem að fyrirtæki sjá tækifæri í að fjárfesta og skapa störf á svæðinu. En öflugt atvinnulíf er undirstaða alls.

Ég brenn fyrir uppbyggingu Hornafjarðar og ég vil stuðla að uppbyggingu á öllum sviðum bæði hjá sveitarfélaginu sjálfu, fyrirtækjum og íbúum þess.

Einnig vil ég létta til með barnafjölskyldum, Hornafjörður á að vera besti staður á Íslandi til að eignast og ala upp börn.

En fyrst og fremst mun ég starfa fyrir íbúa á Hornafirði og mun stefna mín þróast og mótast næstu árin eftir þörfum þeirra hverju sinni.

Ég hef því ákveðið að bjóða mig fram í fyrsta sæti Sjálfstæðisflokksins á Hornafirði

————-
11. mars 2026

Framtíðin er björt!

Á laugardaginn veljum við Sjálfstæðismenn lista okkar fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.  

Ég hef mikla trú á framtíð sveitarfélagsins okkar og er sannfærður um að reynsla mín, ekki síst úr atvinnulífinu, geti nýst til að styrkja samfélagið okkar enn frekar.

Í gegnum störf mín hef ég komið að uppbyggingu fyrirtækja og verkefna bæði í dreifbýli og þéttbýli. Þar hef ég öðlast víðtæka reynslu af skipulags- og umhverfismálum, frá fyrstu hugmyndum til framkvæmda og reksturs. Ég þekki því vel hvaða forsendur þurfa að vera til staðar til að byggja upp sterkt atvinnulíf og skapa tækifæri til vaxtar í samfélaginu.

Eitt af mínum helstu markmiðum er að Hornafjörður verði þekktur sem framúrskarandi sveitarfélag fyrir barnafjölskyldur. Þar sem fjölskyldur velja að setjast að vegna góðra skóla, öflugs íþrótta- og tómstundastarfs, öruggs samfélags og fjölbreyttra atvinnutækifæra. Með skýrri stefnu og markvissri uppbyggingu getum við gert gott samfélag enn betra.

Íþróttastarf í sveitarfélaginu skiptir mig miklu máli. Íþróttir styrkja heilsu og efla samstöðu. Við eigum að halda áfram að byggja upp góða aðstöðu. Á sama tíma verðum við að vinna slíkar framkvæmdir af ábyrgð og virðingu fyrir sameiginlegum fjármunum og tryggja að þær nýtist breiðum hópi íbúa.

Ég vil einnig sjá meiri aga í rekstri sveitarfélagsins. Fjármunir almennings eru dýrmætir og ber að fara með þá af festu og ábyrgð. Með skýrri forgangsröðun og vandaðri fjármálastjórn getum við tryggt bæði stöðugleika og svigrúm til nauðsynlegrar uppbyggingar.

Framtíð Hornafjörður er björt. Með sterku atvinnulífi, ábyrgri stjórnun og skýrri sýn getum við byggt upp samfélag sem fólk velur að búa í, samfélag sem við getum öll verið stolt af.

Ég býð mig fram til að leiða þá vinnu.

Ykkar Reynir