Sindri Ragnarsson

Ég gef kost á mér í 2.–4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Hornafirði. Ég er fæddur og uppalinn á Hornafirði, hef búið hér nánast allt mitt líf og þekki samfélagið okkar vel. Ég er giftur Fanneyju Björgu Sveinsdóttur og við eigum tvo drengi.

Ég hef notið þeirra forréttinda undanfarin 14 ár að koma á fót og starfa við eigin ferðaþjónustufyrirtæki. Þetta var ein lykilforsenda þess að ég ásamt betri helmingnum ákváðum að setjast að í heimabæ mínum, skjóta rótum í þessu öfluga samfélagi og sjá framtíðina fyrir okkur hér á Hornafirði. Undanfarin 11 ár hef ég komið að rekstri ferðaþjónustufyrirtækisins Glacier Trips ásamt því að starfa við jökla- og íshellaleiðsögn. Sú reynsla hefur gefið mér mikilvæga og dýrmæta innsýn inn í atvinnumálin, sérstaklega í ferðaþjónustu og hversu mikilvægt er að þessi atvinnugrein fái að dafna hér á svæðinu. Vatnajökulsþjóðgarður skiptir okkur Hornfirðinga sköpum og við verðum að gæta þess að missa hann ekki alfarið frá okkur.

Ég er með BSc-gráðu í íþróttafræði og hef starfað mikið í kringum íþróttastarf á Hornafirði, meðal annars við þjálfun hjá Ungmennafélaginu Sindra í fjöldamörg ár og jafnframt kennt íþróttir við Grunnskóla Hornafjarðar. Ég vann einnig um tíma hjá velferðarsviði sveitarfélagsins, þar sem ég kom að góðum verkefnum — og er sérstaklega stoltur af því að hafa tekið þátt í að koma hreyfingu eldri borgara í betri farveg. Ég brenn fyrir því að sem flest börn og ungmenni fái tækifæri til að stunda íþróttir óháð efnahag, því mér finnst hafa orðið aukin mismunun á síðustu árum og þátttaka minnkað. Með komandi áformum um nýtt íþróttahús tel ég mikilvægt að íþrótta- og tómstundamál fái skýran forgang, þannig að ný mannvirki nýtist sem best og verði raunveruleg lyftistöng fyrir samfélagið.

Ég hef mikla trú á góðu samstarfi í pólitíkinni og vil leggja mitt af mörkum til að börnin, samfélagið og atvinnumálin fái þann forgang sem þau eiga skilið. Ég sækist eftir stuðningi ykkar í prófkjörinu.