Steindór Sigurjónsson

Komið þið sæl.

Ég heiti Steindór Sigurjónsson og er 40 ára, fæddur og uppalinn hér á Höfn í Hornafirði. Ég tók barnaskólann hér og var tvö ár í FAS. Þá lagði ég leið mína til Reykjavíkur þar sem ég vann við ýmis störf eins og smíðar, leiðsögn, barþjónustu ofl skemmtilegt.

Eftir að ég kom heim aftur skellti ég mér í skipulagningu og í rekstur lítils hótels í Lóni sem heitir Hrafnavellir ásamt foreldrum mínum og hef unnið þar með þeim að uppbyggingu, kynningu, bókhaldi ásamt mörgu öðru síðastliðin 8 ár.

Ég hef verið virkur í starfi og skipulagningu fyrir Knattspyrnudeild Sindra ásamt öðru góðu fólki í gegnum tíðina enda mikill áhugamaður um fótbolta og allt sem honum viðkemur.

Ég hef verið svo heppin að vinna með góðu og hæfu fólki að uppbyggingu fótboltans undan farin ár. Ég hef mikinn áhuga á tómstundamálum, skipulagsmálum, menntamálum, umhverfismálum, menningarmálum og mörgum öðrum sveitarstjórnar málum. Ég var í 9 sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir síðustu kosningar og hef unnið ýmis störf í nefndum fyrir sveitafélagið á kjörtímabilinu sem er að ljúka auk þess að vera varamaður í bæjarstjórn á síðasta árinu fyrir flokkinn. Þetta hafa verið lærdómsrík ár og hef ég gert allt mitt til að vinna að heilindum að þeim málum sem mér bar að sinna og hef ég mikinn áhuga á að vinna áfram að málefnum sveitarfélagsins með Sjálfstæðisflokknum.

Störf mín í þágu sveitar félagsins bera þess vitneskju að ég tek ábyrgð mína alvarlega og legg mig allan fram.

Ég sækist eftir 3 – 6 sæti á lista sjálfstæðismanna í Hornafirði til sveitarstjórna kosninga 2026. Lifið heil.