Ég býð mig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar þar sem ég sækist eftir 5-6 sæti á listanum.
Ég er alinn upp á Vopnafirði og kem hingað á vertíð 17 ára gamall og hef búið hér að mestu leiti síðan.
Ég starfa sem bæjarverkstjóri hjá sveitarfélaginu og gegni einnig stöðu hafnsögumanns hjá höfninni. Ég hef verið aðalmaður í umhverfis- og skipulagsnefnd þetta kjörtímabilið sem hefur verið bæði krefjandi og mjög lærdómsríkt.
Það er mikill uppgangur í okkar flotta sveitarfélagi og framtíðin björt, ég hef áhuga á að halda áfram að vinna að stækkun okkar sveitarfélags og því leita ég eftir þínum stuðningi í þessu prófkjöri.
