Kæru félagar,
Ég býð mig fram í 2. – 3. sæti á lista Sjálfstæðisfélags Austur-Skaftafellssýslu af einlægri trú á að við getum byggt enn sterkara og öruggara samfélag fyrir alla íbúa svæðisins. Ég vil leggja mitt af mörkum til að efla öryggi, jafnræði og raunverulegt samráð í allri ákvarðanatöku.
Ég er 1. varabæjarfulltrúi, formaður Velferðarnefndar, formaður Notendaráðs um málefni fatlaðs fólks og aðalmaður í Atvinnu- og menningarmálanefnd.
Helstu áherslumál mín eru meðal annars öryggisinnviðir í sveitarfélaginu. Við þurfum að tryggja að grunnþjónusta, viðbragðsaðilar og fjarskipti standist kröfur nútímans – sama hvar fólk býr. Öruggar og áreiðanlegar samgöngur eru þar lykilatriði, bæði fyrir daglegt líf og atvinnulíf. Samgöngur eru öryggismál.
Ég vil einnig vera sterk rödd þeirra sem heyrast síður: fatlaðs fólks, barna og íbúa í dreifbýli. Samfélagið okkar á að endurspegla þarfir allra, ekki aðeins þeirra sem hæst tala. Við eigum að hafa það að leiðarljósi að engar ákvarðanir séu teknar um fólk án aðkomu þess sjálfs – „engar ákvarðanir um mig án mín“. Með ábyrgð, festu og opnu samtali getum við skapað sveitarfélag þar sem öll fá notið sín.
Ég óska eftir stuðningi ykkar í annað sæti og hlakka til að halda áfram að vinna fyrir samfélagið okkar.
Tinna Rut Sigurðardóttir

—-
10. mars 2026
Þegar vanda skal valið !
Í mínum huga eru það forréttindi að fá að hafa áhrif á uppröðun á lista stjórnmálaflokka.
Með því að kjósa þá sem þú telur vera bestu kostina til að leiða listann hefur þú enn
meiri áhrif á hvernig næstu 4 árin í samfélaginu verða.
Þið þekkið mig sennilega fæst sem hógværa og orðlausa, en hvernig set ég í örfá orð
allt sem ég vil gera fyrir samfélagið okkar ? Eftir 3 ár sem atvinnubílstjóri og 10 ár þar á
undan starfandi í velferðarþjónustunni á Höfn eru þetta mínar helstu áherslur.
Ég vil vinna áfram að auknu öryggi í samgöngum, velferðarmálum og bættum
lífsgæðum allra íbúa sýslunnar.
Við þurfum að tryggja að grunnþjónusta, viðbragð og fjarskipti standist kröfur nútímans
– óháð búsetu. Öruggar og áreiðanlegar samgöngur eru þar lykilatriði, fyrir daglegt líf og
atvinnulíf. Samgöngur eru öryggismál. Þá er mér sérstaklega hugleikin ný lega
þjóðvegar í Öræfum og allar einbreiðu brýrnar okkar. Við þurfum stöðugt að berjast fyrir
auknu öryggi og betri samgöngum. Nýja hringtorgið okkar sýnir vel hvað hægt er að
gera þegar baráttuvilji er til staðar.
Ég vil jafnframt vera sterk rödd þeirra sem heyrast síður: fatlaðs fólks, barna og íbúa í
dreifbýlinu. Samfélagið okkar á að endurspegla þarfir allra, ekki aðeins þeirra sem hæst
tala. Við eigum að hafa það að leiðarljósi að engar ákvarðanir séu teknar um fólk án
aðkomu þess sjálfs – „engar ákvarðanir um mig án mín“.
Með ábyrgð, festu og opnu samtali getum við skapað sveitarfélag þar sem öll fá notið
sín. Ég vil efla Hornafjörð með sterku stoðkerfi fyrir fjölskyldur, öflugu atvinnulífi og
uppbyggingu innviða.
Ég óska eftir stuðningi ykkar í 2.–3. sæti á lista Sjálfstæðisfélags Austur-Skaftafellssýslu
af einlægri trú á að við getum byggt enn sterkara og öruggara samfélag fyrir alla íbúa
sýslunnar. Ég hlakka til að halda áfram að vinna fyrir samfélagið okkar.
Tinna Rut Sigurðardóttir
varabæjarfulltrúi
formaður Velferðarnefndar
formaður Notendaráðs um málefni fatlaðs fólks