Prófkjör

Reynir skrifar

Framtíðin er björt!

Á laugardaginn veljum við Sjálfstæðismenn lista okkar fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.  

Ég hef mikla trú á framtíð sveitarfélagsins okkar og er sannfærður um að reynsla mín, ekki síst úr atvinnulífinu, geti nýst til að styrkja samfélagið okkar enn frekar.

Í gegnum störf mín hef ég komið að uppbyggingu fyrirtækja og verkefna bæði í dreifbýli og þéttbýli. Þar hef ég öðlast víðtæka reynslu af skipulags- og umhverfismálum, frá fyrstu hugmyndum til framkvæmda og reksturs. Ég þekki því vel hvaða forsendur þurfa að vera til staðar til að byggja upp sterkt atvinnulíf og skapa tækifæri til vaxtar í samfélaginu.

Eitt af mínum helstu markmiðum er að Hornafjörður verði þekktur sem framúrskarandi sveitarfélag fyrir barnafjölskyldur. Þar sem fjölskyldur velja að setjast að vegna góðra skóla, öflugs íþrótta- og tómstundastarfs, öruggs samfélags og fjölbreyttra atvinnutækifæra. Með skýrri stefnu og markvissri uppbyggingu getum við gert gott samfélag enn betra.

Íþróttastarf í sveitarfélaginu skiptir mig miklu máli. Íþróttir styrkja heilsu og efla samstöðu. Við eigum að halda áfram að byggja upp góða aðstöðu. Á sama tíma verðum við að vinna slíkar framkvæmdir af ábyrgð og virðingu fyrir sameiginlegum fjármunum og tryggja að þær nýtist breiðum hópi íbúa.

Ég vil einnig sjá meiri aga í rekstri sveitarfélagsins. Fjármunir almennings eru dýrmætir og ber að fara með þá af festu og ábyrgð. Með skýrri forgangsröðun og vandaðri fjármálastjórn getum við tryggt bæði stöðugleika og svigrúm til nauðsynlegrar uppbyggingar.

Framtíð Hornafjarðar er björt. Með sterku atvinnulífi, ábyrgri stjórnun og skýrri sýn getum við byggt upp samfélag sem fólk velur að búa í, samfélag sem við getum öll verið stolt af.

Ég býð mig fram til að leiða þá vinnu.

Ykkar Reynir