Þegar vanda skal valið !
Í mínum huga eru það forréttindi að fá að hafa áhrif á uppröðun á lista stjórnmálaflokka. Með því að kjósa þá sem þú telur vera bestu kostina til að leiða listann hefur þú enn meiri áhrif á hvernig næstu 4 árin í samfélaginu verða.
Þið þekkið mig sennilega fæst sem hógværa og orðlausa, en hvernig set ég í örfá orð allt sem ég vil gera fyrir samfélagið okkar ? Eftir 3 ár sem atvinnubílstjóri og 10 ár þar á undan starfandi í velferðarþjónustunni á Höfn eru þetta mínar helstu áherslur. Ég vil vinna áfram að auknu öryggi í samgöngum, velferðarmálum og bættum lífsgæðum allra íbúa sýslunnar.
Við þurfum að tryggja að grunnþjónusta, viðbragð og fjarskipti standist kröfur nútímans – óháð búsetu. Öruggar og áreiðanlegar samgöngur eru þar lykilatriði, fyrir daglegt líf og atvinnulíf. Samgöngur eru öryggismál. Þá er mér sérstaklega hugleikin ný lega þjóðvegar í Öræfum og allar einbreiðu brýrnar okkar. Við þurfum stöðugt að berjast fyrir auknu öryggi og betri samgöngum. Nýja hringtorgið okkar sýnir vel hvað hægt er að gera þegar baráttuvilji er til staðar.
Ég vil jafnframt vera sterk rödd þeirra sem heyrast síður: fatlaðs fólks, barna og íbúa í dreifbýlinu. Samfélagið okkar á að endurspegla þarfir allra, ekki aðeins þeirra sem hæst tala. Við eigum að hafa það að leiðarljósi að engar ákvarðanir séu teknar um fólk án aðkomu þess sjálfs – „engar ákvarðanir um mig án mín“. Með ábyrgð, festu og opnu samtali getum við skapað sveitarfélag þar sem öll fá notið sín. Ég vil efla Hornafjörð með sterku stoðkerfi fyrir fjölskyldur, öflugu atvinnulífi og uppbyggingu innviða.
Ég óska eftir stuðningi ykkar í 2.–3. sæti á lista Sjálfstæðisfélags Austur-Skaftafellssýslu af einlægri trú á að við getum byggt enn sterkara og öruggara samfélag fyrir alla íbúa sýslunnar. Ég hlakka til að halda áfram að vinna fyrir samfélagið okkar.
Tinna Rut Sigurðardóttir
- varabæjarfulltrúi
formaður Velferðarnefndar
formaður Notendaráðs um málefni fatlaðs fólks

