Eflum ásýnd og öryggi í Sveitafélaginu Hornafirði

Í okkar góða sveitarfélagi eru forréttindi að fá að búa, ala upp börn og verða gamall.

Hér höfum við ótakmarkaða fegurð í formi náttúrunnar sem umlykur allt og gefur okkur einstaka umgjörð.

Í þéttbýlinu eru það samt við, íbúarnir sem sjáum um að fegra nærumhverfið og móta ásýnd sveitarfélagsins, hvort sem það er einstaklingurinn sem hirðir garðinn sinn og ber í pallinn eða starfsmaðurinn sem sópar götur og slær grasið. Þar hefur margt gott verið gert, en það má alltaf gera betur, það er ég undirritaður, ásamt fleirum mjög meðvitaður um.

Hreint og vel hirt sveitarfélag er eitthvað sem við íbúar ættum öll að fara fram á, og á í raun að vera sjálfsögð krafa. Bæði það sem við sjálf getum komið að í okkar nærumhverfi, en ekki síður sá partur sem snýr að sveitarfélaginu sjálfu.

Undirritaður leggur ríka áherslu á að ráðist verði í markvisst átak til að lyfta ásýnd og umgengni í sveitarfélaginu á það plan að við getum öll verið stolt af því að búa hér og taka á móti gestum í snyrtilegu og aðlaðandi umhverfi og samfélagi.

Jafnframt væri áhugaverð nálgun að ráða skrúðgarðyrkjumeistara til starfa í Áhaldahúsið sem héldi utan um starfsemi vinnuskólana og leiði öflugt og markvisst átak í hagnýtri gróðursetningu trjáa til þess að mynda skjól og fegra. Ekki síður mikilvægt er að viðhalda og sinna þeim beðum, trjám og opnu svæðum sem hafa séð betri daga hér í bæ.

Einnig fara ásýnd og öryggi saman þegar kemur að ástandi gatna og göngustíga. Þar hefur mikið verið gert á kjörtímabilinu, en uppsöfnuð þörf var orðin talsverð og má áfram gera betur í þeim efnum. 

Í heilsueflandi samfélagi er grunnkrafa að geta gengið, hjólað og ferðast um í öruggu umhverfi. Við þurfum að halda áfram að bæta gangstéttir, götur og stíga, draga úr umferðahraða þar sem þörf er á og tryggja gott aðgengi fyrir alla.

Þetta eru skýr og raunhæf verkefni sem skipta máli fyrir daglegt líf fólks.

Ég vill styðja við góðar hugmyndir og lausnir í þessum málefnum og leggja mitt af mörkum til að fylgja þessum málum eftir af metnaði og ábyrgð á nýju kjörtímabili.

Níels Brimar Jónsson

6.sæti XD – Hornafirði