ÁRANGUR ÁFRAM –
STEFNUSKRÁ
Stjórnsýsla og fjármál
Rekstur sveitarfélagsins er sterkur og vel í stakk búinn til að takast á við áskoranir framtíðar. Á kjörtímabilinu höfum við tvisvar lækkað fasteignaskatt og ætlum að halda ótrauð áfram á þeirri braut. Við leggjum áherslu á ábyrga fjármálastjórn, aga og aðhald í rekstri. Mannauður sveitarfélagsins er lykillinn að góðri þjónustu og við munum áfram styðja við starfsfólk, auka skilvirkni og bæta þjónustu við íbúa.

Engar sjálfvirkar hækkanir fasteignaskatts
Við léttum álögum á heimili með því að lækka álagningarhlutfall fasteignaskatts þegar fasteignamat hækkar og tryggjum þannig að fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði hækki ekki umfram verðlag á kjörtímabilinu.

Lægri kostnaður fyrir barnafjölskyldur
Við fellum niður fæðisgjöld í leikskóla og frístund og lækkum kostnað barnafjölskyldna með nýju þrepaskiptu systkinaafsláttarkerfi strax á nýju skólaári.

Lækkum fráveitugjöld
Við lækkum fráveitugjaldið úr 0,34% í 0,26% og tryggjum um leið verðmæti og stöðugleika í rekstri með langtímagreiðsluáætlun frá Hornafjarðarveitum til 20 ára.

Meira samtal og öflugri íbúaráð
Við eflum samtal og samráð milli dreifbýlis og þéttbýlis og formfestum hlutverk íbúaráða. Í það minnsta einn bæjarfulltrúi situr fundi ráðanna í hvert skipti.

Betri og snjallari þjónusta
Við höfum þegar tekið stór skref í bættri upplýsingagjöf. Við höldum áfram á þeirri braut með skýrari samskiptum, styttri boðleiðum og aðgengilegri þjónustu. Samhliða innleiðum við snjallar lausnir, svo sem íbúakort og smáforrit, sem bæta upplýsingaflæði.
Atvinnu- og menningarmál
Á kjörtímabilinu höfum við stóreflt Menningarmiðstöð Hornafjarðar, meðal annars með opnun Gömlubúðar. Við ætlum að móta nýja atvinnustefnu og efla fjölbreytni starfa og styrkja lifandi menningu í öllu sveitarfélaginu.

Öflugt atvinnulíf og ný atvinnustefna
Við mótum heildstæða atvinnustefnu í samráði við íbúa og atvinnulíf með það að markmiði að styrkja rekstrarumhverfi, auka fjölbreytni starfa og efla heilsárs atvinnu í sveitarfélaginu.

Rekstrarumhverfi og vöxtur
Við tryggjum aðgengi að fjölbreyttum atvinnulóðum og aðstöðu. Við ætlum að finna leiðir til að styðja við smærri fyrirtæki, t.d. með endurskoðun á gjaldskrám og eflingu Atvinnu- og rannsóknarsjóðs.

Markviss markaðssetning svæðisins
Við fjárfestum í auknum mæli í markaðssetningu sveitarfélagsins með það að leiðarljósi að efla ímynd, auka sýnileika fyrirtækja, fjölga íbúum, atvinnutækifærum og laða að fleiri gesti.

Vatnajökulsþjóðgarður og samfélagið
Við beitum okkur af festu fyrir því að starfsemi þjóðgarðsins styðji við atvinnulíf, byggð og nýsköpun í sveitarfélaginu og að heimamenn hafi raunverulega aðkomu að ákvörðunum sem snerta nærumhverfið.

Blómlegt og aðgengilegt menningarlíf
Við eflum menningarstarf og styðjum við nýsköpun í menningu og listum. Við höldum áfram uppbyggingu og viðhaldi félagsheimila og nýtum þau enn betur í samráði við heimafólk.
VELFERÐARMÁL
Við byggjum á öflugu velferðarkerfi og munum leggjum áherslu á að þjónusta sé aðgengileg, örugg, mannleg og svari þörfum íbúa á öllum æviskeiðum. Við bætum búsetuúrræði, eflum heilbrigðisþjónustu og inngildingu í samfélaginu.

Virkni og vellíðan eldri íbúa
Við veitum eldri Hornfirðingum nýjan 30 þúsund króna frístundarstyrk sem greiðir niður heilsueflingu, námskeið og fleira til að stuðla að aukinni þátttöku og bættri líðan. Við leggjum jafnframt áherslu á að fleiri nýti sér slíka þjónustu.

Öflug búsetuúrræði og virkniþjónusta
Við höldum áfram undirbúningi að uppbyggingu búsetukjarna fyrir fatlaða, öryggis- og þjónustuíbúða fyrir aldraða og sköpum aðstöðu fyrir verndaðan vinnustað.

Bætt heilbrigðisþjónusta
Við sækjum enn fastar að stjórnvöldum um eflingu heilbrigðisþjónustu á svæðinu, þar á meðal reglulegar heimsóknir sérfræðilækna og aukinn stuðning við heilbrigðisstarfsfólk. Við höldum áfram í góðu samstarfi við HSU um veitingu heilbrigðisþjónustu í Öræfum. Leitum leiða til að efla heimahjúkrun, meðal annars utan hefðbundins dagvinnutíma.

Inngilding og jöfn tækifæri
Við stuðlum að inngildingu erlendra íbúa með því að niðurgreiða aðgang að BARA TALA appinu og efla þannig íslenskukunnáttu og auðvelda þeim þátttöku í samfélaginu.

Fjölbreyttara húsnæði fyrir alla
Við eflum samstarf við Leigufélagið Bríeti og sambærileg íbúðafélög til að auka framboð og uppbyggingu leiguíbúða um allt sveitarfélagið.
Fræðslu- og frístundamál
Við leggjum áherslu á enn öflugra skólastarf og fjölbreyttari frístundatækifæri fyrir öll börn, frá leikskóla til framhaldsskóla. Við styðjum barnafjölskyldur, styrkjum innviði og tryggjum að börn og ungmenni hafi jafnari tækifæri til þátttöku í námi og tómstundum í öllu sveitarfélaginu.

Aukinn stuðningur við barnafjölskyldur
Við tvöföldum frístundastyrkinn í 140 þúsund krónur, rýmkum reglur um nýtingu hans þannig að hann nýtist einnig upp í mótsgjöld og tryggjum að öll börn fimm ára og yngri fái 30 þúsund króna styrk.

Íþrótta- og frístundaaðstaða
Við forgangsröðum uppbyggingu og viðhaldi íþróttamannvirkja um allt sveitarfélagið. Við ljúkum frágangi reiðhallarinnar og bætum sundlaugarsvæðið, meðal annars með nýjum rennibrautum. Við hefjum undirbúning að nýju frístundahúsi við Hofgarð og ráðumst í nauðsynlegt viðhald á Mánagarði.

Sterkt skólastarf og betri aðstaða
Við höldum áfram skipulagi á framtíðaruppbyggingu Grunnskóla Hornafjarðar og bætum starfsaðstæður nemenda og starfsfólks, meðal annars með framkvæmdum á matsal í Hafnarskóla, Kátakoti, skólalóð og á miðsvæðinu við sundlaugina.

Öflugt íþrótta- og frístundastarf fyrir alla
Við styðjum áfram við fjölbreytt íþrótta- og frístundastarf í sveit og bæ í nánu samstarfi við ungmennafélögin og aðra hagaðila. Tryggjum að öll börn, óháð fjárhag og búsetu, hafi aðgang að slíkri starfsemi.

Nemendagarðar og framtíðaruppbygging
Á kjörtímabilinu vinnum við að samkomulagi um uppbyggingu nemendagarða á Höfn til að styðja enn frekar við nám og búsetu ungs fólks í sveitarfélaginu.
Umhverfis-, skipulags- og framkvæmdamál
Við viljum öruggt og aðlaðandi sveitarfélag með skýrri forgangsröðun í uppbyggingu innviða og skipulagi. Áhersla er áfram á markvissar framkvæmdir, vandað viðhald og samvinnu við ríkið í lykilverkefnum.

Uppbygging íþrótta- og skólamannvirkja
Við ráðumst í uppbyggingu nýs íþróttahúss og gervigrasvallar á Höfn og mótum heildstæða framtíðarsýn fyrir miðsvæðið með skóla- og íþróttastarf í huga.

Björgunarmiðstöð í Öræfum og efling slökkviliðs
Við stefnum að uppbyggingu björgunarmiðstöðvar í Öræfum í samstarfi við ríkið og lykilaðila. Á kjörtímabilinu höfum við stóreflt slökkviliðið, meðal annars með kaupum á tveimur nýjum slökkvibílum á Höfn og í Öræfum. Höldum áfram að styrkja búnað og innviði til að tryggja öfluga viðbragðsgetu um allt sveitarfélagið.

Öruggt og aðgengilegt nærumhverfi
Við höldum áfram að setja öryggi vegfarenda í forgang með markvissu viðhaldi gatna og stíga, hraðatakmarkandi aðgerðum og fullgerðum gönguhring á Höfn. Við bætum aðstöðu á útivistar-svæðum með bekkjum, betri lýsingu og tengingum.

Skýr og sanngjörn úrgangsmál
Við ljúkum hönnun og hefjum endurbætur móttökusvæðis. Við ætlum að ná fram betri flokkun og auka þjónustu til að mynda með rýmri opnunartíma í Gárunni. Sérstök áhersla verður lögð á að bæta þjónustu í dreifbýli, meðal annars með uppbyggingu grenndarstöðvar í Öræfum og bættu aðgengi að hrægámum.

Sterkar samgöngur og tengingar
Við sækjum fast að ríkinu um framkvæmdir og aukinn fyrirsjáanleika varðandi nýjar veglínur í Öræfum og Lóni. Við krefjumst tafalausrar fækkunar einbreiðra brúa og viljum hefja undirbúning ganga undir Lónsheiði. Stórbæta þarf fjarskipti í sveitarfélaginu öllu og setjum við enn meiri þrýsting á fjarskiptafyrirtæki að sinna þessu hlutverki.

Betri hafnarmannvirki og aukið öryggi
Við eflum hafnarsvæðið og leggjum sérstaka áherslu á öryggi með skýrri stýringu umferðar og aðgengis. Við ljúkum hönnun nýrrar bræðslubryggju á árinu og ráðumst í framkvæmdir í kjölfarið. Á komandi kjörtímabili hyggjumst við einnig bæta við flotbryggjum og fara vel yfir aðgengismál, gjaldskrá og þjónustu vegna landanna strandveiðibáta.

Flugvöllurinn – ný tækifæri til framtíðar
Markmið okkar er að Hornafjarðarflugvöllur geti tekið á móti flugi erlendis frá. Við höldum áfram markvissri vinnu að þeirri uppbyggingu, líkt og á núverandi kjörtímabili, til að opna nýjar gáttir fyrir atvinnulíf og ferðaþjónustu á svæðinu.

Skipulag og framboð lóða
Við tryggjum nægt framboð byggingarlóða undir íbúðir ásamt fjölbreyttum atvinnulóðum. Uppbygging Hagahverfis er þegar hafin og mun tryggja lóðaframboð næstu árin. Samhliða styðjum við áfram uppbyggingu í sveitum í nánu samstarfi við íbúa og landeigendur.

Fallegra umhverfi og ásýnd.
Við leggjum meiri áherslu á fegrun sveitarfélagsins. Við gerum það með aukinni gróðursetningu, uppbyggingu og umhirðu opinna svæða. Samhliða ætlum við að auka öryggi við Leiðarhöfða, halda áfram að vinna eftir leikvallaáætlun og styðjum fjölbreytta útivist, hjólamenningu og aðgengi fyrir alla.
ÁRANGUR ÁFRAM –
fyrir ykkur
Ágæti kjósandi,
Við frambjóðendur XD í Sveitarfélaginu Hornafirði leggjum fram skýra sýn um áframhaldandi uppbyggingu sveitarfélagsins. Við byggjum á ábyrgð, traustri fjármálastjórn og metnaði fyrir samfélagið okkar. Við mótun stefnunnar áttum við víðtækt samtal við íbúa um allt sveitarfélagið og þökkum þeim sem lögðu sitt af mörkum fyrir mikilvægt framlag í þeirri vinnu.
Við höfum á kjörtímabilinu unnið markvisst að því að efla þjónustu, styrkja innviði og bæta rekstrarumhverfi – með góðum árangri. Rekstur sveitarfélagsins er mjög traustur, þjónusta hefur verið bætt og ráðist hefur verið í fjölbreytt verkefni á sviði skóla-, velferðar-, skipulags-, íþrótta- og atvinnumála.
Við höfum þannig lagt traustan grunn að áframhaldandi uppbyggingu um allt sveitarfélagið. Við vitum þó að verkefnin fram undan eru stór. Vöxtur og þróun samfélagsins krefst skýrrar stefnu, góðrar samvinnu og skynsamlegra ákvarðana sem byggja á hagsmunum íbúa til lengri tíma.
Við bjóðum okkur fram til áframhaldandi þjónustu við samfélagið með áherslu á ábyrgð, festu og vönduð vinnubrögð. Við hvetjum þig til að kynna þér áherslur okkar í stefnuskránni og taka upplýsta ákvörðun í sveitarstjórnarkosningunum.
Við þökkum traustið á liðnum árum og óskum eftir þínum stuðningi til að halda áfram að byggja upp enn sterkara samfélag í sveitarfélaginu – til framtíðar fyrir okkur öll.
Frambjóðendur XD í Sveitarfélaginu Hornafirði






