Kæru íbúar sveitarfélagsins Hornafjarðar

Innilegar þakkir fyrir það traust sem þið hafið sýnt okkur í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fóru í gær 16. maí. Kosningabarátta er alltaf frekar sérstakur tími þar sem ólíkar skoðanir og áherslur mætast en það sem vegur þyngst er að okkur þykir öllum vænt um samfélagið okkar og framtíð þess.  Við viljum þakka öllum framboðunum sem tóku þátt fyrir sanngjarna baráttu…

Lesa meira…

Hornafjörður í vasanum

Við trúum á ábyrgan rekstur sveitarfélagsins. Það þýðir að fara vel með fjármagn, nýta tæknina af skynsemi og leita leiða til að bæta þjónustu án þess að flækja líf fólks. Það þýðir líka að sveitarfélagið eigi að vinna með heimafólki, fyrirtækjum, félagasamtökum og íbúum að lausnum sem skila raunverulegum ávinningi í daglegu lífi. Þess vegna leggjum við til íbúakort og…

Lesa meira…

Systkinaafsláttur

Leiðin að því að stofna fjölskyldu getur verið mjög ólík milli manna en þegar hugmyndin er orðin að veruleika viljum við að kerfið styðji við bakið á foreldrum frekar en að íþyngja þeim. Sveitarfélagið Hornafjörður rekur leikskólann Sjónarhól og á núverandi kjörtímabili var ný og glæsileg viðbygging tekin í notkun, búnaður endurnýjaður og unnið að bættum starfsaðstæðum. Eins og staðan…

Lesa meira…

Árangur áfram fyrir atvinnulífið!

Hornafjörður stendur á sterkum grunni. Það er auðvelt að segja þetta svona í kosningagrein. Sterkur grunnur. Fjölbreytt atvinnulíf. Verðmætasköpun. Uppbygging. Allt mjög rétt og allt mjög mikilvægt. En á bak við þessi orð er fólk. Það er fólkið sem fer fyrst á fætur á morgnana. Fólkið sem opnar búðina, fer út á sjó, sinnir skepnunum, bakar brauðið, keyrir vélarnar, svarar…

Lesa meira…

Þjóðgarður Hornafjarðar

Það er sérstök tilfinning að búa við þjóðgarð. Á pappír hljómar það eins og einskær gæfa. Hreint loft, stórbrotin náttúra, ferðamenn hvaðanæva að úr heiminum og stofnun sem hefur það meðal lögbundinna markmiða að styrkja byggð og atvinnustarfsemi í nágrenni sínu. Hver gæti verið á móti slíku? Svo líður tíminn. Ferðamönnum fjölgar. Bílastæði fyllast. Gjaldtaka eykst. Fyrirkomulag starfsleyfa er ófyrirsjáanlegt…

Lesa meira…

Saman erum við sterkari

Sveitarfélagið Hornafjörður samanstendur af þéttbýliskjarnanum Höfn og sveitunum í kring. Sveitirnar hafa hver sína sérstöðu og vegalengdir frá þjónustu setja mark sitt á líf og starf þeirra sem þar búa. Þarfirnar eru ólíkar og áskoranirnar milli sveita ekki alltaf þær sömu þó svo að hægt sé að finna ákveðin samhljóm. Þörf er á lausnum sem henta hverju svæði og teljum…

Lesa meira…

Fjárfestum í börnum, fjölskyldum og framtíðinni

Fræðslu- og frístundamál eru meðal mikilvægustu verkefna hvers sveitarfélags. Þar erum við ekki aðeins að tala um skóla, íþróttir eða tómstundir, heldur um framtíð barnanna okkar, lífsgæði fjölskyldna og heilsu samfélagsins alls. Sveitarfélag sem vill vaxa og dafna þarf að skapa börnum og ungmennum góð skilyrði til náms, hreyfingar, samveru og þátttöku. Eitt stærsta og skýrasta málið okkar er að…

Lesa meira…

Eflum ásýnd og öryggi í Sveitafélaginu Hornafirði

Í okkar góða sveitarfélagi eru forréttindi að fá að búa, ala upp börn og verða gamall. Hér höfum við ótakmarkaða fegurð í formi náttúrunnar sem umlykur allt og gefur okkur einstaka umgjörð. Í þéttbýlinu eru það samt við, íbúarnir sem sjáum um að fegra nærumhverfið og móta ásýnd sveitarfélagsins, hvort sem það er einstaklingurinn sem hirðir garðinn sinn og ber…

Lesa meira…