Fræðslu- og frístundamál eru meðal mikilvægustu verkefna hvers sveitarfélags. Þar erum við ekki aðeins að tala um skóla, íþróttir eða tómstundir, heldur um framtíð barnanna okkar, lífsgæði fjölskyldna og heilsu samfélagsins alls. Sveitarfélag sem vill vaxa og dafna þarf að skapa börnum og ungmennum góð skilyrði til náms, hreyfingar, samveru og þátttöku.
Eitt stærsta og skýrasta málið okkar er að tvöfalda frístundastyrk barna úr 70.000 krónum í 140.000 krónur á ári. Þetta er raunveruleg aðgerð sem skiptir fjölskyldur máli. Kostnaður við íþróttir og tómstundir hefur aukist og það má ekki verða þannig að efnahagur heimilis ráði því hvort barn geti tekið þátt í fótbolta, körfubolta, blaki, tónlist, leiklist eða annarri uppbyggilegri frístund.
Við viljum líka stíga stærra skref fyrir yngstu börnin. Við ætlum að hækka styrk fyrir fimm ára börn í 30.000 krónur á ári og jafnframt bæta öllum börnum yngri en 5 ára inn í þann styrk. Með þessu erum við að senda skýr skilaboð: þátttaka, hreyfing og félagsleg virkni skipta máli frá fyrstu árum.
Þá ætlum við einnig að horfa til eldri borgara og setja á nýjan árlegan styrk fyrir þann hóp, 30.000 krónur á ári. Frístundir og hreyfing snúast ekki eingöngu um börn, heldur líka um heilsu, félagsleg tengsl og lífsgæði á öllum æviskeiðum. Virkt samfélag er sterkara samfélag.
Það skiptir þó miklu máli að þetta sé unnið í góðu samtali við íþróttafélögin og aðra aðila sem halda utan um frístundastarf. Ef sveitarfélagið hækkar stuðninginn má það ekki gerast að gjöld hækki á móti og ávinningurinn hverfi. Markmiðið er skýrt: styrkurinn á að skila sér til fjölskyldna, barna og eldri borgara.
Þess vegna eru áherslurnar skýrar:
Frístundastyrkur barna: úr 70.000 kr. → 140.000 kr. á ári
Styrkur fyrir 5 ára börn: 30.000 kr. á ári
Börn yngri en 5 ára bætast inn í styrkinn
Nýr styrkur fyrir eldri borgara: 30.000 kr. á ári
Á sama tíma þurfum við að horfa til framtíðar í skólamálum. Skipulag framtíðaruppbyggingar grunnskóla þarf að vera vel ígrundað og tengjast annarri uppbyggingu í sveitarfélaginu. Nýtt íþróttahús, gervigras á Sindravelli og framtíðarskipulag skólastarfs þurfa að haldast í hendur. Þetta eru ekki aðskilin verkefni heldur hlutar af sömu framtíðarsýn: að byggja upp öflugt, barnvænt og heilsueflandi samfélag.
Það hefur aldrei verið meiri þörf en nú á að auka þátttöku barna og unglinga í íþróttum og tómstundum. Samfélagið hefur breyst hratt. Skjátími hefur aukist, félagsleg einangrun er meiri áskorun en áður og börn þurfa jákvæða vettvanga þar sem þau finna sig, eignast vini og byggja upp sjálfstraust.
Varðandi uppbyggingu íþróttamannvirkja þurfum við að vinna hratt, örugglega og af ábyrgð. Það má ekki flækja ferlið að óþörfu eða tefja framkvæmdir sem börnin okkar eiga að njóta. Þessi mannvirki eru fyrst og fremst fyrir þau. Við eigum ekki að standa í vegi fyrir því að þau fái betri aðstöðu sem fyrst.
Með öflugri frístundastyrkjum, skýrri framtíðarsýn í skólamálum og markvissri uppbyggingu íþróttamannvirkja fjárfestum við þar sem það skiptir mestu máli: í börnum, fjölskyldum og framtíð Hornafjarðar.
Sindri Ragnarsson
5.sæti XD – Hornafirði
