Hornafjörður í vasanum

Við trúum á ábyrgan rekstur sveitarfélagsins. Það þýðir að fara vel með fjármagn, nýta tæknina af skynsemi og leita leiða til að bæta þjónustu án þess að flækja líf fólks. Það þýðir líka að sveitarfélagið eigi að vinna með heimafólki, fyrirtækjum, félagasamtökum og íbúum að lausnum sem skila raunverulegum ávinningi í daglegu lífi.

Þess vegna leggjum við til íbúakort og íbúaapp.

Hugmyndin er einföld: Íbúar fái stafrænt íbúakort sem veitir betra aðgengi að þjónustu sveitarfélagsins, viðburðum, afsláttum og tilboðum hjá fyrirtækjum í heimabyggð. Kortið getur orðið fyrsta skrefið að einfaldara og snjallara þjónustuumhverfi þar sem fólk hefur betri yfirsýn, sveitarfélagið nýtir fjármuni betur og heimafyrirtæki fá aukinn sýnileika.

Þetta er ekki tækni tækninnar vegna. Þetta er verkfæri til að styrkja samfélagið.

Með íbúakorti má tengja saman þjónustu á borð við sund, menningu, íþróttir, bókasafn, viðburði og aðra þjónustu sveitarfélagsins. Síðar getur íbúaapp byggst ofan á kortið og orðið einföld leið fyrir íbúa til að nálgast upplýsingar, nýta þjónustu, sjá réttindi sín, fá tilkynningar og eiga skilvirkari samskipti við sveitarfélagið.

Við viljum byrja á lausn sem skilar árangri strax og byggja hana síðan upp skref fyrir skref. Fyrst kemur kortið. Síðan meiri þjónusta. Að lokum snjallara sveitarfélag þar sem stjórnsýslan er einfaldari, gagnsærri og nær fólkinu.

Við erum eini flokkurinn sem leggur þessa hugmynd fram. Það skiptir máli. Því þetta sýnir muninn á því að tala almennt um nýsköpun og að koma með raunhæfa, framkvæmanlega hugmynd sem getur styrkt íbúa, fyrirtæki og rekstur sveitarfélagsins.

Þetta er ekki fjarlæg framtíðarsýn eða óprófuð tæknidraumur. Sambærilegar lausnir eru þegar komnar í notkun hjá íslenskum sveitarfélögum. Munurinn er sá að við viljum gera þetta að heildstæðri lausn fyrir íbúa Hornafjarðar — með einu korti, einu appi og betri þjónustu fyrir alla íbúa sveitarfélagsins.

Hér til hliðar má skoða ýmsa notkunareiginleika sem hægt væri að innleiða með appi og korti:

Kjósum árangur áfram – með snjallari þjónustu og sterkari heimabyggð.

Einfaldari þjónusta á einum stað
Í stað margra korta, miða og kerfa getur íbúakortið sameinað lykilþjónustu á einum stað og gert þjónustuna skýrari og aðgengilegri. Íbúar geti svo séð yfirlit yfir sína þjónustu, umsóknir, gjöld, bókanir og réttindi í appinu.

Aðgangur að sundlaugum og bókasafni
Íbúakortið virki sem rafrænt aðgangskort í sund, hvort sem um er að ræða staka miða, fjölnotakort eða árskort. Íbúakortið nýtist sem bókasafnskort og einfaldi aðgang að lánum og þjónustu bókasafnsins.

Hvati til að versla heima
Kortið veiti íbúum sérstök tilboð og afslætti hjá verslunum, veitingastöðum og þjónustuaðilum í sveitarfélagin., Einfalt umbunarkerfi sem hvetur íbúa til að nýta þjónustu og verslun í heimabyggð.

Upplýsingar fyrir nýja íbúa
Appið geti verið móttökugátt fyrir nýja íbúa með upplýsingum um skóla, þjónustu, félagasamtök, sorphirðu, tómstundir og samfélagið.

Viðburðadagatal og aðgengi að viðburðum
Hægt verði að nota kortið sem miða eða afsláttarkort á menningarviðburði, tónleika, sýningar og hátíðir. Appið sýni menningarviðburði, íþróttaviðburði, fundi, hátíðir og aðra viðburði á einum stað.

Sorphirðudagatal og aðgangur að sorpþjónustu
Kortið geti veitt íbúum aðgang að ákveðinni þjónustu, til dæmis grenndarstöðvum eða hrægámum. Íbúar fái áminningu í appi um hvaða tunna er sótt og hvenær, ásamt upplýsingum um flokkun og opnunartíma gámasvæða.

Tilkynningar frá sveitarfélaginu
Appið sendi mikilvægar tilkynningar um lokanir, framkvæmdir, veður, sorphirðu, viðburði og þjónustubreytingar. Íbúar fái áminningu um hvaða tunna er sótt og hvenær, ásamt upplýsingum um flokkun og opnunartíma gámasvæða.

Einfaldar umsóknir og bókanir
Hægt verði að sækja um þjónustu beint í appinu, til dæmis leikskóla, frístund, akstur, styrki eða leyfi. Hægt verði að bóka tíma, aðstöðu eða þjónustu, til dæmis í íþróttamannvirkjum, fundarsölum eða hjá stjórnsýslu.

Ábendingakerfi og bein samskipti
Íbúar geti sent inn ábendingar um það sem þarf að laga, til dæmis holur í götum, bilaða lýsingu, hálku, rusl eða skemmdir. Sömuleiðis átt einfaldari samskipti við sveitarfélagið án þess að þurfa að leita á mörgum stöðum.

Alexander Vigfússon

10.sæti XD – Hornafirði