Kæru íbúar sveitarfélagsins Hornafjarðar

Innilegar þakkir fyrir það traust sem þið hafið sýnt okkur í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fóru í gær 16. maí.

Kosningabarátta er alltaf frekar sérstakur tími þar sem ólíkar skoðanir og áherslur mætast en það sem vegur þyngst er að okkur þykir öllum vænt um samfélagið okkar og framtíð þess. 

Við viljum þakka öllum framboðunum sem tóku þátt fyrir sanngjarna baráttu og óskum þeim velfarnaðar í framhaldinu. Þökkum einnig öllum þeim fjölda fólks sem kom að okkar kosningabaráttu með margvíslegum hætti. Bestu þakkir til ykkar sem lögðuð á ykkur ómælda vinnu sl vikur og mánuði  og voruð alltaf boðin og búin að aðstoða við framboðið. Ykkar þáttur er ómetanlegur. 

Nú tekur við nýr kafli sem enn er óskrifaður en við munum vinna fyrir samfélagið allt og gera það ennþá betra fyrir alla íbúa. Við ætlum að hlusta, vinna af ábyrgð og leggja áherslu á trausta þjónustu. 

Árangur áfram fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð

Fyrir hönd D lista Sjálfstæðismann á Hornafirði

Gauti Árnason

1.sæti XD – Hornafirði