Saman erum við sterkari

Sveitarfélagið Hornafjörður samanstendur af þéttbýliskjarnanum Höfn og sveitunum í kring. Sveitirnar hafa hver sína sérstöðu og vegalengdir frá þjónustu setja mark sitt á líf og starf þeirra sem þar búa. Þarfirnar eru ólíkar og áskoranirnar milli sveita ekki alltaf þær sömu þó svo að hægt sé að finna ákveðin samhljóm. Þörf er á lausnum sem henta hverju svæði og teljum við að það sé rými fyrir bætta þjónustu. Við höfum bent á að endurskoða þurfi sorpmál til sveita, efla íbúaráðin og hlúa að félagsheimilunum svo eitthvað sé nefnt.

Félagsheimilin eru hjarta hverrar sveitar en það eru ekki húsin sem slík sem skapa þennan sess í huga margra heldur minningarnar, fólkið og starfsemin í kringum þau. Húsin eru jafn misjöfn og þau eru mörg, sum þeirra hafa fasta starfsemi og reglulega viðburði meðan önnur eru minna notuð.

Við viljum efla starfsemi innan og utan veggja félagsheimilana, bæta þarf aðgengi og gera umhverfið aðlaðandi. Viðhaldi er ábótavant en við teljum að hægt sé að ná betri nýtingu á húsunum með því að hlúa að þeim innan sem utan, þetta helst svo í hendur, því þegar meiri starfsemi er í húsinu er ríkara tilefni til að sinna viðhaldi og fara í endurbætur.

Fjarvinnukjarnar eða vinnustofur er starfsemi sem á jafnt heima í dreifbýli og þéttbýli. Við viljum kanna þörf, áhuga og möguleika á hverju svæði en slík starfsemi gæti fært aukið líf í félagsheimilin unnið gegn félagslegri einangrun og skapað tækifæri til nýsköpunar og þróunar í dreifbýlinu.

Þörf er á að lífga uppá útisvæðin, ýmist með leikvöllum eða öðru skemmtilegu svo sem menningarlegum munum sem skapa sérstöðu. Aðdráttarafl sem slíkir leikvellir hafa er mikið og þar skapast vettvangur fyrir sveitunga til að koma saman og rækta vinnskapinn. Einnig er góður leikvöllur ákveðinn áfangastaður innan sveitarfélagsins og tækifæri eru í að setja upp örnefnakort eða aðrar upplýsingar þannig að hægt sé að fræðast og læra um sitt nærumhverfi.

Við megum ekki tapa sjónar á því að við erum eitt Sveitarfélag og saman myndum við traustan grunn. Við höfum fjölbreytt atvinnu- og mannlíf og án hvers annars væri samfélagið ekki jafn sterkt og raun ber vitni. Aðstæður þurfa að vera þannig að hver einstaklingur fái að njóta sín en einnig þurfum við að taka höndum saman og vinna að málunum sem heild. Þarna þarf að vera gott jafnvægi þannig að sveitarfélaginu og íbúum þess farnist sem best.

Saman gerum við gott samfélag enn betra.

Ásta Steinunn Eiríksdóttir

3.sæti XD – Hornafirði