Leiðin að því að stofna fjölskyldu getur verið mjög ólík milli manna en þegar hugmyndin er orðin að veruleika viljum við að kerfið styðji við bakið á foreldrum frekar en að íþyngja þeim. Sveitarfélagið Hornafjörður rekur leikskólann Sjónarhól og á núverandi kjörtímabili var ný og glæsileg viðbygging tekin í notkun, búnaður endurnýjaður og unnið að bættum starfsaðstæðum.
Eins og staðan er núna komast börn frá 12 mánaða aldri inn á leikskóla sem auðveldar foreldrum að snúa aftur útá vinnumarkaðinn, það er stefna okkar að halda því áfram þannig. Þar að auki er boðið uppá systkinaafslátt, í dag er gefinn 50% afsláttur af vistunargjöldum fyrir annað barn og ekki þarf að greiða fyrir þriðja barn. Afslátturinn nær á milli skólastiga en mesti afslátturinn er þó alltaf veittur af ódýrustu þjónustunni. Lengd viðvera er mun ódýrari en leikskólagjöldin enda í skemmri tíma og allt annars eðlis en starfsemi leikskólans. Við það að barn fari í grunnskóla lækka vistunargjöld en á móti koma yfirleitt önnur gjöld til dæmis tengd frístundum.
Þessu viljum við breyta þannig að fjölskyldur sem eru með börn á báðum skólastigum njóti raunverulega þess að fá afslátt. Þar að auki viljum við fella niður fæðisgjöld í leikskóla og í lengdri viðveru. Við leggjum til nýtt þrepaskipt afsláttarkerfi þannig að fjölskylda með tvö börn fái 35% afslátt af heildar vistunargjöldum, þrjú börn greiði 50% og þeir sem eru svo lánsamir að eiga fjögur börn eða fleiri fá 60% afslátt af heildar vistunargjöldum.
Fyrir fjölskyldu með tvö eða fleiri börn í daggæslu hjá sveitarfélaginu þýðir þetta að lágmarki rúmlega 9 þúsund króna lækkun á gjöldum á mánuði en fyrir barnmargar fjölskyldur er ávinningurinn enn meiri, sem dæmi ef tvö börn eru í leikskóla og tvö í lengdri viðveru nemur lækkunin rúmlega 38 þúsund krónum á mánuði.
Með þessum breytingum vonumst við til að foreldrum muni um þessa aukningu á ráðstöfunartekjum í hverjum mánuði en það bitni ekki á rekstrarumhverfi og skipulagi leikskólastarfsins.
Ásta Steinunn Eiríksdóttir
3.sæti XD – Hornafirði
